Leik lokið: KA-Valur 2-5 | Vals­menn með annan stórsigurinn í röð

Árni Gísli Magnússon skrifar
Valsmenn voru í stuðu á Akureyri í kvöld og hafa skorað flest mörk allra liða í Bestu deildinni í sumar.
Valsmenn voru í stuðu á Akureyri í kvöld og hafa skorað flest mörk allra liða í Bestu deildinni í sumar. Vísir/Diego

Valsmenn eru sjóðheitir þessa dagana og þeir fylgdu á eftir stórsigri á KR með 5-2 stórsigri á KA fyrir norðan í kvöld. Þetta var fyrsti leikurinn í þrettándu umferð Bestu deildar kalra í fótbolta.

Valsmenn nýttu sér vel mörg mistök KA-manna sem færðu þeim mörkin á silfurfati í kvöld. Adam Ægir Pálsson skoraði það fyrsta og tveimur mínútum síðar skoruðu KA-menn í eigið mark. Bjarni Aðalsteinsson minnkaði muninn í 2-1 í lok fyrri hálfleiks en Valsmenn skoruðu aftur tvö mörk á stuttum tíma í seinni hálfleik og gerðu út um leikinn. Þau mörk skoruðu þeir Tómas Bent Magnússon og Albin Skoglund.

Varamaðurinn Stefán Gísli Stefánsson innsiglaði síðan sigurinn með sínu fyrsta marki í efstu deild. Hans Viktor Guðmundsson lagaði aðeins stöðuna fyrir KA undir lok leiksins.

Valsmenn fóru upp í annað sætið með þessum sigri og eru nú aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Víkings. Valur er búið að skora flest mörk í deildinni eða 35 mörk í 13 leikjum.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira