Íslenski boltinn

Aldrei séð föður sinn jafn glaðan og sáttan í einu og sama verk­efninu

Aron Guðmundsson skrifar
Feðgarnir Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði og leikmaður Real Sociedad og Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Bestu deildar liðs KR.
Feðgarnir Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði og leikmaður Real Sociedad og Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Bestu deildar liðs KR. Vísir/Samsett mynd

Ís­lenski lands­liðs­fyrir­liðinn í fót­bolta, Orri Steinn Óskars­son, segist aldrei hafa séð föður sinn Óskar Hrafn Þor­valds­son, þjálfara KR, eins glaðan og sáttan í einu og sama verk­efninu. Hann telur aðeins tíma­spursmál þar til allt smelli hjá KR og segir líkingar föður síns, sem borið hefur á í viðtölum, ekki nýjar af nálinni.

Orri Steinn hefur fylgst náið með gengi KR það sem af er tíma­bili og af þeim tíma sem hann hefur varið hér heima milli tíma­bila á Spáni hefur hann verið í kringum KR-liðið og segir frábæra stemningu ríkja í her­búðum liðsins.

„Það hefur verið geggjað að fylgjast með og sjá pabba blómstra sem þjálfari. Ég held ég hafi aldrei séð hann eins glaðan og sáttan í einu verk­efni,“ segir Orri um föður sinn Óskar Hrafn, þjálfara KR, sem er á sínu fyrsta heila tíma­bili sem þjálfari liðsins eftir að hafa tekið við stjórnar­taumunum í Vestur­bænum um mitt síðasta tíma­bil.

Klippa: Orri um föður sinn Óskar Hrafn og KR

„Mjög neðarlega á listanum mínum“

KR, líkt og svo oft áður, hefur verið mikið á milli tannanna á fólki það sem af er tíma­bili í Bestu deildinni. Þrátt fyrir að liðið sé aðeins einu stigi frá fallsæti, en með leik til góða á liðin fyrir neðan sig, þá þykir liðið hafa spilað einn skemmti­legasta fót­boltann í Bestu deildinni hingað til.

KR hefur skorað flest mörk í deildinni en einnig fengið á sig tölu­vert mikið af mörkum. Áherslan hjá Óskari Hrafni hefur verið á sóknarþunganum og frá því verður ekki vikið eins og hann sjálfur hefur oft komið inn á.

„Ég myndi ekki giska á að Óskar Hrafn fari að efast um sjálfan sig,“ segir Orri Steinn. „Það er mjög neðar­lega á listanum mínum. Það er enn nóg eftir af þessu móti, þeir eru enn með nokkra menn í meiðslum og það vantar smá upp á. Ég tel það bara tíma­spursmál hvenær allt fer að smella saman, bæði sóknar- og varnar­lega. Auðvitað búið að vera betra sóknar­lega en ég held þetta komi allt því lengra sem líður á tíma­bilið.“

Hefur alltaf verið svona

KR heimsækir Val í Bestu deildinni í kvöld í Reykja­víkurs­lag en á tíma­bilinu hefur Óskar Hrafn vakið at­hygli fyrir líkingar sínar í viðtölum og vísanir í sögur fyrri tíðar. Eftir jafn­tefli gegn Val fyrr á tíma­bilinu sagði hann KR liðið ekki ætla fara spila með belti, axla­bönd og „áhættu­tryggingu frá Lloyd's í Bret­landi“ og þá vísaði hann einnig í spænska land­vinninga­manninn Hernán Cortés sem brenndi öll sín skip eftir að hafa siglt þeim til Mexíkó árið 1519: „Við erum búnir að brenna skipin. Það verður ekki aftur snúið.“

Þessar líkingar eru ekki nýjar af nálinni hjá Óskari, Orri sem spilaði undir stjórn föður síns fyrr á ferlinum, varð snemma var við þær.

„Já hann hefur oft komið með góðar líkingar, alveg frá því við vorum í þriðja flokki að spila á Gróttu­vellinum. Þar var hann í stuttu líkingunum sem voru ekki alveg jafn flóknar og þessar sem hann kemur með í dag. Hann er aðeins búinn að stíga upp í flókindunum. En hann hefur alltaf verið svona, eitt­hvað sem ég hef séð mjög oft hjá honum. Núna hefur þetta slegið í gegn, menn eru búnir að brenna skipin.“

Viðtalið við Orra Stein, sem tekið var í síðasta landsleikjaglugga, má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:  

„Stór hluti af lífi okkar“

Feðgarnir eru dug­legir við að heyra hvor í öðrum og ræða lífið í boltanum.

„Það er auðvitað búinn að vera stór hluti af lífi okkar beggja að hjálpa hvor öðrum í öllu. Hann sem þjálfari og ég sem leik­maður, við getum horft á hlutina öðru­vísi frá hjá hvor öðrum. Við ræðum mikið um taktík, stöðu, hvernig ég get spilað betur og hvað hann getur lag­fært. Þetta hefur verið stór hluti af lífi okkar að geta alltaf hringt í hvorn annan, ein­hvern innan fjöl­skyldunnar sem er alveg klikkaður í fót­bolta. Það er eitt­hvað sem ég er mjög glaður að eiga, það hjálpaði mér sem ungum leik­manni og var að koma upp. Þurfti að vera dug­legur að æfa og bæta mig sem leik­maður.“

Valur og KR mætast í Reykja­víkurs­lag í Bestu deildinni í fót­bolta í beinni út­sendingu á Sýn Sport klukkan korter yfir sjö í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×