Íslenski boltinn

Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lárus Orri Sigurðsson verður ekki áfram með Skagamenn.
Lárus Orri Sigurðsson verður ekki áfram með Skagamenn. Vísir/Anton

Skagamenn tilkynntu eftir lokaleik tímabilsins að Lárus Orri Sigurðsson hefði stýrt liðinu í síðasta sinn.

Skagamenn gerðu 4-4 jafntefli við Keflavík í Akraneshöllinni og enduðu þar með í fjórða sæti Bestu deildarinnar í sumar.

Eftir leikinn kom tilkynning á miðlum félagsins þar sem kom fram að Knattspyrnufélag ÍA og Lárus Orri Sigurðsson hefðu komist að samkomulagi um að Lárus Orri léti af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu.

Samkvæmt heimildum Vísis er Heimir Guðjónsson að fara að taka við ÍA-liðinu af Lárusi.

Lárus Orri tók við þjálfun Skagaliðsins á síðasta ári og hefur stýrt því undanfarin tvö keppnistímabil.

„Við erum Lárusi Orra afar þakklát fyrir hans framlag til ÍA undanfarin tvö ár. Hann tók við liðinu við krefjandi aðstæður og tókst strax að snúa gengi liðsins við og tryggja sæti okkar í efstu deild. Í ár byggði hann svo ofan á þann árangur og skilaði félaginu í 4. sæti og besta árangri þess í 19 ár,“ sagði Eggert Herbertsson, formaður ÍA, í frétt á miðlum Skagamanna.

„Lárus Orri hefur sýnt stefnu félagsins mikinn skilning og unnið markvisst að því að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri til að vaxa og þróast. Lárus Orri hefur lagt mikinn metnað í starfið og átt mjög góð samskipti við leikmenn, starfsfólk og aðra innan félagsins. Hann skilur við liðið á góðum stað og getur verið stoltur af því starfi sem hann hefur skilað. Fyrir hönd ÍA vil ég þakka Lárusi Orra kærlega fyrir samstarfið, hans mikla framlag og þann árangur sem náðst hefur. Við óskum honum alls hins besta í þeim verkefnum sem taka við,“ sagði Eggert enn fremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×