Fótbolti

Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Forysta asíska knattspyrnusambandsins gat ekki staðið saman sem ein heild gegn Gianni Infantino og hefur því tekið algjöra U-beygju, sem er stór sigur fyrir forseta FIFA.
Forysta asíska knattspyrnusambandsins gat ekki staðið saman sem ein heild gegn Gianni Infantino og hefur því tekið algjöra U-beygju, sem er stór sigur fyrir forseta FIFA. EPA/TOMS KALNINS

Knattspyrnusamband Asíu lýsir nú yfir fullum stuðningi við endurkjör Giannis Infantino sem forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA. Tilkynningin kom frá forseta AFC, Salman bin Ibrahim al-Khalifa sjeik, á þingi sambandsins í Tókýó.

„Við staðfestum að við styðjum þig (Infantino) og forystu þína að fullu í framboði þínu til nýs kjörtímabils sem forseti FIFA,“ sagði al-Khalifa, samkvæmt AP.

Stuðningurinn kom úr óvæntri átt þar sem al-Khalifa, ásamt meðal annars UEFA, hafði tekið harða afstöðu gegn Infantino, einkum í tengslum við tillöguna um að selja eignarhluti í heimsmeistaramótinu, sem nú hefur verið lögð á hilluna.

Stuðningur 47 aðildarlanda AFC er talinn ráða úrslitum fyrir forsetakjörið í mars. Knattspyrnusamband Afríku (CAF) styður einnig Infantino, en Evrópa (UEFA) og Knattspyrnusamband Norður- og Mið-Ameríku (CONCACAF) hafa krafist afsagnar hans.

Salman sjeik hefur áður gagnrýnt Infantino en sagði að ágreiningurinn væri nú að baki. Infantino hefur verið forseti FIFA frá árinu 2016 og hefur enn engan mótframbjóðanda.

„AFC velur asíska raunsæisstjórnmálastefnu fram yfir alþjóðlegar umbætur. Forysta Asíu gat ekki staðið saman sem ein heild gegn Infantino og hefur því tekið algjöra U-beygju, sem er stór sigur fyrir forseta FIFA. Auk þeirra sem styðja Infantino opinberlega í Asíu gefur þessi ákvörðun þeim knattspyrnusamböndum sem hefðu stutt Salman af hollustu grænt ljós á að skipta um lið. ,“ skrifaði John Duerden, blaðamaður Guardian.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×