Körfubolti

Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfja­prófi

Sindri Sverrisson skrifar
Veigar Páll Alexandersson féll á lyfjaprófi í vor og er í banni fram í maí á næsta ári.
Veigar Páll Alexandersson féll á lyfjaprófi í vor og er í banni fram í maí á næsta ári. vísir/Guðmundur

Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson, leikmaður Njarðvíkur, hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því ekki með Njarðvík á þessari leiktíð.

Veigar Páll staðfestir þetta í yfirlýsingu sem hann sendi á Vísi í dag. Þar segir hann að ADHD-lyf, sem hann hafi tekið í tengslum við próflestur síðasta vor, hafi mælst í lyfjaprófi eftir leik með Njarðvík.

Bannið gildir frá lyfjaprófinu þar sem að Veigar Páll hefur ekki spilað körfubolta síðan, á meðan hann hefur beðið dómsins. Því gildir bannið til 11. maí á næsta ári.

„Ég er þakklátur lyfjanefndinni en hámarksrefsing vegna slíkra mála er fjögurra ára keppnisbann. 2-3 ára bann er ekki óalgengt í svona tilvikum en vegna sérstakra aðstæðna og í ljósi þess að brot mitt var ekki til að afla mér forskots við íþróttaiðkun þá ákvað nefndin að vægari refsing væri viðeigandi.

Ég geri mér fulla grein fyrir þeim áhrifum sem málið hefur á liðið og félagið mitt og ég mun gera mitt allra besta til að koma aftur sterkur til leiks fyrir Njarðvík eftir að banninu lýkur,“ segir Veigar í yfirlýsingu sinni.

Veigar Páll Alexandersson hefur verið lykilmaður í liði Njarðvíkur.vísir/Guðmundur

„Mér þykir afar leitt að hafa brugðist trausti liðsfélaga minna. Ég hef hitt þá og forsvarsmenn félagsins og beðist afsökunar á mistökum mínum.

Ég styð fyllilega baráttuna gegn lyfjanotkun í íþróttum og að til staðar sé öflugt lyfjaeftirlit. Ég mun nú einbeita mér að háskólanámi mínu, ásamt almennri styrktarþjálfun, með það fyrir augum að koma sterkur til baka næsta vor,“ bætir hann við.

Veigar, sem er 25 ára gamall, hefur verið viðloðandi íslenska landsliðið en var ekki í landsliðshópnum í sumar eftir að hafa verið eini nýliðinn í hópnum sem mætti Litháen í undankeppni HM í tveimur leikjum í febrúar.

Veigar er uppalinn Njarðvíkingur og hefur verið lykilmaður í liðinu en hefur einnig leikið í bandaríska háskólakörfuboltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×