Körfubolti

Kastaði skó í mót­herja í miðjum leik

Það gekk mikið á í leik Toronto Tempo og New York Liberty í WNBA-deildinni í körfubolta um helgina en körfuboltakonan Bethinjah Laney-Hamilton var rekin út úr húsi eftir að hafa kastað skó í mótherja.

Körfubolti

Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um vald­níðslu

Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og stofnandi körfuboltafélagsins Aþenu, greinir frá því á samfélagsmiðlinum Facebook að meistaraflokkur liðsins hafi verið lagður niður og taki ekki þátt í Bónus deild kvenna í haust. Reykjavíkurborg, valdníðslu hennar og skorti aðgerða nýs meirihluta í borginni sé um að kenna.

Körfubolti

Kinu Rochford sagður myrtur

Körfuboltamaðurinn Kinu Rochford, sem lék hér á landi á árunum 2018 til 2020, er látinn 35 ára að aldri. Hann er sagður hafa verið skotinn til bana í Harlem í New York.

Körfubolti

Annar stór­sigur strákanna á EM

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára yngri vann öruggan 83-57 sigur á Kýpur í dag á EM U20 í Bratislava. Liðið er með fullt hús stiga eftir tvo leiki á mótinu.

Körfubolti

Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig

Körfuboltamaðurinn LeBron James er enn að leita sér að nýju NBA-félagi eftir að hann ákvað að yfirgefa Los Angeles Lakers. Sum félög sem hafa áhuga á að fá hann til liðs við sig hafa fengið tækifæri til að kynna sig fyrir fjórfalda meistaranum með sérstökum hætti.

Körfubolti

Elvar snýr aftur til Litháens

Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson hefur ákveðið að snúa aftur til Litháens og spila í efstu deild einnar mestu körfuboltaþjóðar Evrópu á næstu leiktíð.

Körfubolti

Jón Axel spilar á Kanarí­eyjum

Landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson mun spila körfubolta í Las Palmas á Kanaríeyjum á næstu leiktíð, eftir að hafa samið við spænska félagið Gran Canaria til eins árs.

Körfubolti

„Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“

Baldur Þór Ragnarsson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, var í skýjunum eftir magnaðan og dramatískan 88-86 sigur liðsins á Bretlandi í Manchester í dag. Með sigrinum komst Ísland áfram í seinni umferð undankeppni HM 2027.

Körfubolti

Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“

Elvar Már Friðriksson átti mjög góða kafla í leik Íslands og Ítalíu fyrr í kvöld. Hans framlag dugði þó ekki til enda mjög erfitt að eiga við Ítalíu í þeim ham sem þeir voru í í kvöld. Elvar skoraði 13 stig en leiknum lauk 83-102 fyirr gestina.

Körfubolti