Körfubolti

Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum

Valur Páll Eiríksson skrifar
KR-ingar geta verið bjartsýnir fyrir veturinn í körfunni ef marka má sérfræðinga Körfuboltakvölds.
KR-ingar geta verið bjartsýnir fyrir veturinn í körfunni ef marka má sérfræðinga Körfuboltakvölds. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Keppni hefst í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld og búist við mikilli spennu meðal bestu liða landsins. Álftanes hefur farið hamförum á markaðnum í sumar og Tindastóll er sem fyrr með gríðarsterkt lið. KR og Stjarnan mæta einnig öflug til leiks.

Í upphitunarþætti Bónus-deildarinnar fyrr í vikunni var farið yfir komandi toppbaráttu og í blindri röðun sinni á toppbaráttu deildarinnar tókust þeir Benedikt Guðmundsson og Hlynur Bæringsson á um hvernig ætti að raða efstu liðum deildarinnar upp.

Hlynur virðist hafa sérstaklega mikla trú á KR-ingum, sem voru í þriðja sæti í opinberri spá fyrir tímabilið, en hann vildi setja KR-inga í efsta sætið.

Benedikt var á því að efstu tvö sæti deildarinnar væru frátekin fyrir Álftanes og Tindastól sem eru með afar sterka leikmannahópa fyrir komandi vetur.

Stjarnan var fyrst toppliðanna fjögurra upp úr hattinum og eftir að menn höfðu sett Garðbæinga í þriðja sætið vandaðist valið um hvert af hinum þremur liðunum ætti að setja í fjórða sætið í spánni.

Umræðu um öll fjögur liðin má sjá í spilurunum fjórum að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×