Körfubolti

Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennu­leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Martin Hermansson og Tryggvi Snær Hlinason í leik með íslenska landsliðinu á Eurobasket en að þessu sinni voru þeir mótherjar.
Martin Hermansson og Tryggvi Snær Hlinason í leik með íslenska landsliðinu á Eurobasket en að þessu sinni voru þeir mótherjar. Getty/Marcin Golba

Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin höfðu betur í Íslendingaslag í Meistaradeildinni í körfubolta í kvöld.

Alba Berlin vann þá þriggja stiga sigur á spænska félaginu Surne Bilbao, 103-100.

Íslensku landsliðsmennirnir skoruðu báðir átta stig í leiknum og nýttu sínar mínútur vel.

Tryggvi Snær Hlinason var með 8 stig og 7 fráköst en var í miklum villuvandræðum og spilaði aðeins í rúmar tíu mínútur. Tryggvi nýtti eina skotið sitt utan af velli og sex af átta vítum sínum.

Martin spilaði í næstum því sautján mínútur og var með átta stig og sjö stoðsendingar á þeim. Martin nýtti 3 af 7 skotum utan af velli þar af tvö af þremur þriggja stiga skotum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×