Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Valur Páll Eiríksson skrifar 28. október 2026 14:02 Augun á Kópavoginum? Magnús Már og Arnar Grétars eru báðir orðaðir við stöðuna. Vísir Arnar Grétarsson er meðal þeirra sem orðaður er við þjálfarastarf Breiðabliks. Hann hefur ekki heyrt frá félaginu en segir starfið spennandi. Magnús Már Einarsson segist ekki hafa fundað með Blikum.
Arnar er meðal þeirra sem orðaður er við starfið hjá Breiðabliki og samkvæmt stuðlum Epicbet er stuðullinn lægstur á að hann taki við starfinu, 3,00 sem stendur. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að Breiðablik væri hans draumastarf, enda þar uppalinn. Sigurður sagðist þó vera ánægður hjá Þór og hann gerði ekki ráð fyrir að heyra frá Blikum. Arnar Grétarsson hefur áður stýrt Blikum frá 2015 til 2017 og var leikmaður liðsins frá 1988 til 1997 og milli 2006 og 2009. Arnar segist eiga regluleg samtöl við menn í kringum félagið, enda þekkir hann þar hvern kima hafandi verið þar sem leikmaður og þjálfari. „Ég hef ekki heyrt í þeim formlega ennþá,“ segir Arnar í samtali við íþróttadeild Vísis. Arnar segir starfið sannarlega vera heillandi. „Það hefur margt breyst frá því að ég var þarna síðast árið 2015 og það halda áfram að koma upp margir spennandi leikmenn í góðu starfi Breiðabliks. Þetta er eitt mest spennandi starf sem í boði er hér á landi,“ segir Arnar sem hefur auk Breiðabliks stýrt KA, Val og síðast Fylki í fyrrasumar hér á landi. Magnús segir no komment „Það er eiginlega bara no komment á allt,“ segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar. „Ég er bara samningsbundinn Aftureldingu og er mjög ánægður þar. Þar er ég bara að undirbúa næsta tímabil.“ Afturelding komst upp í Bestu deildina með sigri í Lengjudeildinni í sumar og þá komst liðið jafnframt alla leið í úrslitaleik Mjólkurbikarsins þar sem liðið tapaði einmitt fyrir Breiðabliki. Inntur eftir frekari svörum sagðist Magnús vera glaður hjá sínu félagi í Mosfellsbænum og hygði ekki á brottför eins og sakir standa. Breiðabliksstarfið væri vitaskuld spennandi starf. Magnús sagði ekki hafa fundað með Blikum og ef þeir vildu fá hann til starfa þyrfti að fara í gegnum Aftureldingu. „Þeir þurfa þá að fara í gegnum Aftureldingu og fá leyfi fyrir viðræðum fyrst. Auðvitað er Blikastarfið spennandi en minn hugur er bara við það að byggja upp lið til að takast á við komandi átök í Bestu deildinni.“ Magnús hefur tengingu við Kópavoginn þar sem bróðir hans, Anton Ari Einarsson, er markvörður Breiðabliks. Magnús hefur þjálfað Aftureldingu frá árinu 2019. Samningur hans rann út síðasta haust í Mosfellsbænum áður en hann ákvað að framlengja í Mosfellsbæ en hafði þá meðal annars átt fund með HK. Ekki náðist í Jökul Elísabetarson við vinnslu greinarinnar en hann er einnig orðaður við starfið í Kópavogi.
Breiðablik Afturelding Besta deild karla Íslenski boltinn Fótbolti Tengdar fréttir Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Umhverfissóðar sem kasta rusli út um gluggann fá að heyra það í Besta sætinu í dag og einhverjir þeirra fengu raunverulega að heyra það frá meðlimi Besta sætisins í gær. 28. október 2026 14:17 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sjá meira
Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Umhverfissóðar sem kasta rusli út um gluggann fá að heyra það í Besta sætinu í dag og einhverjir þeirra fengu raunverulega að heyra það frá meðlimi Besta sætisins í gær. 28. október 2026 14:17