Búið að opna veginn um Raknadalshlíð eftir flóðið Vegurinn um Raknadalshlíð á Vestfjörðum var opnaður rétt eftir klukkan sjö í morgun en snjóflóð féll á hann síðdegis í gær. Dynjandisheiðin er lokuð og sömu sögu er að segja af Kleifarheiði. Innlent 4.3.2026 07:24
Köldu lofti beint til landsins Milli Íslands og Grænlands er nú víðáttumikil lægð sem beinir köldu lofti úr suðvestri til landsins. Veður 4.3.2026 07:01
Gæti orðið flughált síðdegis Spáð er að hlýni skarpt síðdegis með rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu. Það gæti því víða orðið flughált á meðan saman þjappaður snjór og klaki tekur upp. Innlent 3.3.2026 07:25
Vara við stórhríð á Austurlandi Varað við miklum vindi og snjókomu á norðaustanverðu landinu eftir hádegi á morgun. Veður 1. mars 2026 10:08
Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Þó að búast megi við snjókomu með köflum austanlands í dag, og jafnvel lítilsháttar éljum norðan til, verður að mestu bjart sunnan heiða. Aftur á móti eru frosttölur á bilinu 0 til 10 stig í kortunum víða um landið. Veður 1. mars 2026 07:36
Frostlaust sums staðar sunnan heiða Eftir útsynningsveður gærdagsins hefur dregið úr vindi og úrkomu. Von er á suðvestan golu eða kalda í dag og einhverjum éljum á stangli en bjart verður að mestu um landið austanvert. Innlent 28. febrúar 2026 10:13
Hálka í höfuðborginni og þungfært víða um land Vegagerðin varar við því að hálka sé nú á flestum leiðum á höfuðborgarsvæðinu eftir veðrið sem gekk yfir í gækvöldi og í nótt. Á Suðvesturlandi er einnig snjóþekja, eða hálka og hálkublettir, á flestum leiðum. Opið er um Hellisheiði og Þrengsli en Hellisheiðin var opnuð á tólfta tímanum í gærkvöldi. Innlent 27. febrúar 2026 06:54
Strætó fór útaf á Holtavörðuheiði Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum. Innlent 26. febrúar 2026 23:09
Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði hefur verið lokað. Auk þess er búið að loka veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur vegna snjóflóðahættu. Innlent 26. febrúar 2026 22:08
Vaktin: Sautján vélar á röngum velli og flugferðum aflýst Sextán farþegaþotum og einni herþotu var síðdegis í dag lent á þremur varaflugvöllum Íslands vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli. Þetta hafði áhrif á tvö þúsund farþega Icelandair, sem hefur nú aflýst að minnsta kosti fimm flugferðum. Innlent 26. febrúar 2026 15:35
Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Fram eftir degi í dag verður suðaustlæg átt með vætu um sunnanvert landið. Töluverð hláka er á höfuðborgarsvæðinu og má búast við hálkublettum hér og þar auk þess sem pollar hafa myndast víða. Veður 26. febrúar 2026 07:13
Mesti snjórinn síðan í október: „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Vetrarfærð er víða á vestanverðu landinu vegna snjókomu og gular viðvaranir voru gefnar út í dag vegna hríðarveðurs á höfuðborgarsvæðinu, og á Vestfjörðum og við Breiðafjörð sem taka gildi á morgun. Snjóinn tók að kyngja niður á höfuðborgarsvæðinu rétt um klukkan tvö í dag og var gul veðurviðvörun gefin út nær samstundis og veðrið skall á þar sem óljóst var framanaf hvar nákvæmlega úrkomubakkinn myndi ná landi. Innlent 25. febrúar 2026 20:02
Rúta lenti utan vegar Rúta á vegum Reykjavík Excursions sem var á leið til Reykjavíkur lenti utan vegar nærri Litlu kaffistofunni síðdegis í dag. Engum varð meint af og er búið að ferja farþega rútunnar í borgina. Þetta segir Björn Ragnarsson, forstjóri fyrirtækisins, sem lýsir erfiðum akstursskilyrðum á svæðinu. Innlent 25. febrúar 2026 18:47
Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Ofankoma er mikil þessa stundina á höfuðborgarsvæðinu og þau sem hafa tök á því eru hvött til að fara fyrr heim úr vinnu. Gul veðurviðvörun er í gildi og töluverðar seinkanir eru á strætó. Veður 25. febrúar 2026 15:17
Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna snjókomu Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna talsverðrar eða mikillar snjókomu. Veður 25. febrúar 2026 14:05
Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Lögreglan og Vegagerðin biðja ökumenn á suðvestanverðu landinu að fylgjast vel með aðstæðum í dag en búist er við mikilli snjókomu og hríðarveðri. Björgunarsveitir þurftu að koma allnokkrum til bjargar í vetrarveðrinu sem gekk yfir á Austurland í gærkvöldi. Innlent 25. febrúar 2026 11:52
Snjókoma á höfuðborgarsvæði í dag og á morgun Það á að snjóa á höfuðborgarsvæðinu í dag og á morgun. Veðurfræðingur segir ekki um mjög mikið magn að ræða en það gæti breyst. Það eru engar viðvaranir í gildi en ef magnið breytist verða þær sendar út. Veður 25. febrúar 2026 08:10
Úrkomusvæði með snjókomu fer yfir vesturhelming landsins Útlit er fyrir suðvestan- og sunnanátt á landinu í dag og má víða reikna með vindhraði verði á bilinu 8 til 15 metrar á sekúndu. Þó ber að taka fram að vindhraða verður nokkuð misskipt í dag, bæði milli landshluta og einnig breytilegur með tíma innan sama landsvæðis. Veður 25. febrúar 2026 07:13
Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Lögreglan á Suðurnesjum auk lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu biðlar til vegfarenda um að taka ekki óþarfa áhættu og fara ekki af stað á vanbúnum bílum þar sem spáð sé snjókomu víða á suðvestanverðu landinu á morgun með vetrarfærð. Þá er fólk hvatt til að fylgjast vel með færð og veðurspá. Innlent 24. febrúar 2026 23:20
Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu Vegagerðin varar við snjókomu á suðvesturhorninu á morgun með krefjandi aksturskilyrðum, meðal annars í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins. Innlent 24. febrúar 2026 16:05
Gular veðurviðvaranir á Austurlandi Gular veðurviðvaranir taka gildi á Austurlandi síðdegis í dag. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem gætu staðbundið farið yfir þrjátíu metra á sekúndu. Veður 24. febrúar 2026 11:22
Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Eftir sunnanáttina í gær þá snýst í norðan- og norðvestanátt í dag og verður vindur víða á bilinu 8 til 15 metrar á sekúndu en 13 til 20 með snörpum hviðum á Austfjörðum undir kvöld. Veður 24. febrúar 2026 07:12
„Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem nú er í námsleyfi í New York segir fárveðrið hafa sett sinn svip á borgina. Ferðabann ökutækja er nú í gildi í borginni og viðvörun gefin út vegna veðurs í fyrsta sinn í nokkur ár. Lífið 23. febrúar 2026 17:22
Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Veðurstofan segir að næstu daga sé útlit fyrir lægðagang og umhleypingasamt veður, en grunn lægð fyrir vestan land mun stjórna veðrinu í dag. Veður 23. febrúar 2026 07:10