Veður

Fylgstu með lægðinni í beinni

Bjarki Sigurðsson skrifar
Möguleiki er á þrumum og eldingum í skilunum sem myndast nú þegar að mjög djúp og kröpp lægð nálgast landið úr suðri.
Möguleiki er á þrumum og eldingum í skilunum sem myndast nú þegar að mjög djúp og kröpp lægð nálgast landið úr suðri. Earth.nullschool

Viðvaranir eru í gildi víða um land vegna lægðar sem nálgast landið úr suðri. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi í Breiðafirði, á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra í kvöld og í nótt.  

Óvenju lágum þrýstingi (allt niður í 934 hPa) er spáð yfir landinu í dag. Einnig er allvíða von á mikilli ölduhæð nærri ströndinni. Líkur eru á hárri sjávarstöðu og jafnvel sjávarflóðum við suður-, austur- og norðurströndina.

Síðdegis gengur miðja lægðarinnar inn á land og þá dregur úr vindi og úrkomu sunnan- og austanlands. Hins vegar gengur þá í norðan stórhríð á norðvestanverðu landinu.

Í kvöld og í nótt heldur lægðin áfram ferð sinni til norðausturs og færist þá norðanáttin með hríðinni til austurs eftir norðanverðu landinu og einnig yfir á Austurland. Á Norður- og Austurlandi snjóar væntanlega áfram í fyrramálið, en síðan dregur smám saman úr norðanáttinni og ofankomu. Síðdegis á morgun ætti lægðin að vera úr sögunni og veður orðið skaplegt, en nokkuð kalt.

Hægt er að fylgjast með lægðinni ganga yfir á korti hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Óveður gengur yfir landið

Óveður nálgast nú landið og hafa veðurviðvaranir tekið gildi á öllu landinu. Appelsínugular viðvaranir tóku gildi á Suðurlandi klukkan 05:00 og er byrjað að hvessa verulega á suðurhluta landsins. Við fylgjumst með veðrinu í vakt að neðan. 

Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur

Tilkynningar um tjón vegna veðursins hafa borist tryggingafélaginu VÍS. Sérfræðingur hjá félaginu segir mikilvægt að fólk hreinsi lauf frá niðurföllum og rennum til að reyna að koma í veg fyrir að vatn leki inn í hús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×