„Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Bjarki Sigurðsson skrifar 3. nóvember 2026 06:45 Karítas og Huginn Sær Grímsson, unnusti hennar, ásamt syni þeirra. Aðsend Móðir sem á von á sínu öðru barni býst við lágmarksgreiðslum í næsta fæðingarorlofi eftir að hafa dreift greiðslum úr því síðasta. Þingkonur úr Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum vilja breyta útreikningnum. Ljósmóðir vill lengja orlofið í átján mánuði.
Karítas Ólafsdóttir sálfræðingur eignaðist son í júní í fyrra og á von á dóttur í febrúar. Hún tók sjö og hálfs mánaðar fæðingarorlof en dreifði greiðslunum yfir tólf mánuði til að geta verið lengur heima með syni sínum. Það kemur nú niður á greiðslunum sem hún fær í næsta orlofi. Að sögn Karítasar falla nær allir mánuðirnir sem miðað er við í útreikningnum á tímabil þegar hún fékk lægri greiðslur vegna dreifingarinnar. Hún býst því við að fá aðeins lágmarksgreiðslur. „Þeir taka ekki tillit til í rauninni fyrra orlofs ef maður dreifir greiðslum þannig að ég er að enda á bara lágmarkinu,“ segir Karítas. Dreifi hún greiðslunum aftur yfir lengri tíma lækki mánaðarlegar greiðslur enn frekar. Vill eignast börnin fyrir aðgerðir Karítas hefur persónulegar ástæður fyrir því að hafa stutt á milli barna. Hún er með BRCA2-genabreytingu sem eykur krabbameinsáhættu og þarf að gangast undir fyrirbyggjandi aðgerðir. Hún vill eignast börnin sín áður en að þeim kemur. Hún hafði heyrt að reglurnar gætu skert greiðslur við næstu barneignir en lét það ekki ráða för. „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi.“ Karítas skrifaði grein um málið á Vísi fyrr í haust sem vakti mikla athygli. Hana má lesa hér fyrir neðan. Eftir að hún skrifaði um málið á Vísi hafi fjölmargir haft samband. Þar á meðal foreldrar sem hafi frestað barneignum til að tryggja sér hærri greiðslur og fólk sem sé nýkomið úr námi. Hún telur óeðlilegt að reglurnar hafi slík áhrif á ákvarðanir fólks. Sjálf vildi hún verja fyrsta árinu með syni sínum og gaf honum brjóst fram yfir eins árs aldur. Þá þurfti að brúa bilið þar til hann komst í leikskóla, fimmtán mánaða gamall. Unnusti hennar tók við að hennar orlofi loknu og sá meðal annars um leikskólaaðlögunina. „Mér finnst það bara ótrúlega dýrmætur tími sem ég á með barninu mín og mig langar ekkert að stytta hann,“ segir Karítas. Hún segir allar mæður sem hún þekki í kringum sig hafa dreift greiðslunum, yfirleitt yfir níu til tólf mánuði. Þær taki á sig tekjulækkun til að geta verið lengur heima. Dreifingin lækkar mánaðarlegar greiðslur Greiðslur til launafólks í fæðingarorlofi miðast almennt við áttatíu prósent af meðaltali heildarlauna á tólf mánaða tímabili sem lýkur sex almanaksmánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Þær eru þó háðar lágmarki og hámarki. Hvort foreldri á almennt rétt á sex mánaða orlofi og getur framselt sex vikur til hins. Annað foreldrið getur því tekið um sjö og hálfan mánuð og hitt um fjóra og hálfan. Sé greiðslum fyrir sjö og hálfan mánuð dreift jafnt yfir tólf mánuði fær foreldrið fimmtíu prósent af viðmiðunarlaunum í hverjum mánuði, að því gefnu að hvorki greiðsluþak né lágmark hafi áhrif á útreikninginn. Launað sumarleyfi getur lengt tímann heima og þannig hægt að dreifa greiðslunum á færri mánuði. Færa þurfi viðmiðið nær orlofinu Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um endurskoðun viðmiðunartímabilsins. Hún lagði tillöguna fyrst fram eftir að hafa sjálf snúið aftur úr fæðingarorlofi. Hún telur of langt líða frá því tímabili sem greiðslurnar miðast við þar til foreldrar taki orlofið. Útreikningurinn geti því gefið skakka mynd af tekjum þeirra, sérstaklega hjá fólki sem sé nýkomið á vinnumarkað og hafi hækkað í launum. Þetta geti líka komið illa við feður sem taki stærstan hluta orlofsins síðar á fyrsta ári barnsins. Ragna Sigurðardóttir er þingmaður Samfylkingar.Vísir/Vilhelm Ragna vill færa viðmiðið nær töku orlofsins og taka betur tillit til aðstæðna foreldra, svo sem fyrra fæðingarorlofs og veikinda á meðgöngu. „Það vantar undanþágur og meiri sveigjanleika til þess að taka tillit til aðstæðna fólks,“ segir Ragna. Tillagan felur félags- og húsnæðismálaráðherra að endurskoða reglurnar vegna foreldra sem eignast börn með stuttu millibili og fólks sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Ráðherra á samkvæmt henni að leggja fram frumvarp eigi síðar en 1. október 2027. Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Vilhelm Ragna segir ráðherra hafa tekið jákvætt í málið og að kostnaðarmat mismunandi útfærslna sé hafið. Hún, Ragnar Þór og Karítas funduðu saman í október. Karítas telur fundinn hafa gengið mjög vel. „Ragnar Þór tók vel í málið og ætlar að ganga rösklega til verks og láta kostnaðarmeta nokkrar leiðir. Hann benti jafnframt á að sníða mætti suma vankanta af kerfinu með einföldum breytingum. Ég treysti því að hann fylgi því eftir og klári þetta réttlætismál fyrir ungar barnafjölskyldur strax á haustþingi, frekar en að það velkist í starfshópi mánuðum eða árum saman,“ segir Karítas. Þrjátíu mánaða vernd Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur einnig lagt fram frumvarp með breytingum á útreikningnum. Samkvæmt því verði fyrra greiðsluviðmið foreldris notað þegar innan við þrjátíu mánuðir eru liðnir frá því það öðlaðist síðast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Viðmiðið taki breytingum eftir launaþróun en almennar reglur gangi framar ef þær veita meiri rétt. Um tuttugu mánuðir verða milli barna Karítasar miðað við áætlaðan fæðingarmánuð næsta barns. Það bendir til þess að hún gæti fallið undir þrjátíu mánaða skilyrðið, verði frumvarpið að lögum. „Við viljum ekki að kerfið hafi áhrif á það hvenær fólk eignast börn,“ segir Bryndís. Bryndís Haraldsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og hefur lengi látið fæðingarorlofsmálin sig varða.Vísir/Anton Brink Frumvarpið tekur einnig til fólks sem hefur nýlokið námi eða hafið störf eftir atvinnuleysi. Meðal annars er lagt til að fólk sem lýkur námi á síðustu tólf mánuðum fyrir umsókn geti öðlast rétt eftir þriggja mánaða samfellt starf. Þá eru lagðar til breytingar vegna sorgarleyfis. Málið stendur Bryndísi nærri. Hún á tvö rúmlega eins árs barnabörn og bæði dóttir hennar og tengdadóttir eiga von á barni á ný. Í gegnum þær hafi hún kynnst þeim álitaefnum sem foreldrar standi frammi fyrir. Vilji til samstarfs Bryndís vonast til samstarfs þvert á flokka og segir hægt að nota frumvarp sitt sem grunn. Sjálfsagt sé að ráðuneytið fari yfir kostnað og útfærslu en samkvæmt greinargerð frumvarpsins hafa áhrif þess ekki verið kostnaðarmetin. „Ég þarf ekki að eigna mér heiðurinn á einu né neinu,“ segir Bryndís. Breytingarnar eigi þó ekki að bíða eftir heildarendurskoðun kerfisins. „Ég held að það sem ég er að leggja til sé mikilvæg breyting sem við þurfum að sjá gerast hratt og vel.“ Vill átján mánuði með tekjuvernd Helga Reynisdóttir, ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi, tekur undir að útreikningurinn eigi ekki að bitna á foreldrum sem hafa stutt á milli barna. Hún vill jafnframt lengja orlofið. „Í mínum draumaheimi gætu foreldrar valið að hafa barnið sitt heima í að minnsta kosti 18 mánuði með mannsæmandi tekjuvernd,“ segir Helga. Þannig væri hægt að brúa bilið fram að leikskólagöngu og auka fyrirsjáanleika hjá fjölskyldum. Það sé ekki raunhæfur valkostur fyrir alla að dreifa óbreyttum greiðslum yfir fleiri mánuði. View this post on Instagram A post shared by Fæðingarfræðsla Helgu Reynis. (@helgareynisljosa) „Það er dýrt að eignast barn og útgjöld heimilisins lækka ekki þegar tekjurnar skerðast,“ segir Helga. Fjárhagurinn ráði miklu um hversu lengi foreldrar geti verið heima. Fólk með góðar tekjur og sparnað geti lengt tímann en aðrir hafi ekkert slíkt val. „Ég vil að lengra orlof sé raunverulegur valkostur, líka fyrir fólk sem hefur ekki sparnað eða er með háar tekjur.“ Ráðleggingum fylgi aðstæður Helga segir þurfa að styðja konur sem vilji halda brjóstagjöf áfram. Í íslenskum ráðleggingum er mælt með brjóstagjöf út fyrsta árið og lengur ef það hentar móður og barni. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með áframhaldandi brjóstagjöf með viðbótarfæðu til tveggja ára aldurs eða lengur. „Mér finnst að ráðleggingum um brjóstagjöf þurfi að fylgja aðstæður sem gera konum kleift að fylgja þeim, ef þær vilja,“ segir Helga. View this post on Instagram A post shared by Ljósa (@ljosa.is) Það geti verið mikið álag að samræma brjóstagjöf og vinnu og aðstæður séu ólíkar eftir störfum og stuðningi vinnustaða. Samvera og næm umönnun hafi þó gildi óháð því hvernig barn sé nært. „Réttur til góðs fæðingarorlofs á auðvitað að ná til allra foreldra, óháð því hvernig barnið er nært.“ Meðgangan og batinn ekki til helminga Báðar þingkonurnar vilja verja sjálfstæðan rétt beggja foreldra. Bryndís vill þó skoða lengingu orlofs og aukinn sveigjanleika við skiptingu þess. Ragna telur tímabært að endurskoða löggjöfina í heild, meðal annars með stöðu einstæðra foreldra og fósturforeldra í huga. Helga styður rétt beggja foreldra til samveru en telur jafna skiptingu ekki taka nægilegt tillit til meðgöngu, fæðingar og bata. „Meðgangan var ekki 50–50, fæðingin var ekki 50–50, batinn eftir fæðingu var ekki 50–50 og brjóstagjöfin var ekki 50–50,“ segir Helga. View this post on Instagram A post shared by Fæðingarfræðsla Helgu Reynis. (@helgareynisljosa) Hún vill að mæður fái tólf mánaða rétt og feður sex mánaða rétt. Fjölskyldur hafi svigrúm til að ráðstafa mánuðunum átján eftir aðstæðum og þörfum barnsins. Við lenginguna þurfi jafnframt að vernda lífeyrisréttindi og önnur starfstengd réttindi. „Lengri tími með barninu á ekki að verða fátæktargildra eða bitna á öðru foreldrinu.“ Ein leið henti ekki öllum Helga segir foreldra misjafnlega tilbúna að snúa aftur til vinnu. Sumar konur séu tilbúnar eftir hálft ár en aðrar alls ekki eftir rúmt ár. „Við erum ólík, fjölskyldur eru ólíkar og ein útfærsla hentar ekki öllum,“ segir Helga. Ragna leggur einnig áherslu á að konur geti valið hvenær þær snúi aftur til vinnu. „Mér finnst konur stundum vera smánaðar fyrir það að vilja byrja að vinna fyrir tólf mánaða,“ segir Ragna. Hún vill efla leikskólastigið svo það geti tekið við börnum að fæðingarorlofi loknu. Atvinnurekendur auðveldi foreldrum að samræma vinnu og umönnun, meðal annars með svigrúmi til brjóstagjafar og hlutastarfa. Karítas vonast fyrst og fremst til að breytingar á útreikningi greiðslna nái fram að ganga. Hún segist hafa fundið vilja hjá báðum þingkonunum. „Hvor þessara tillagna sem kemst í gegn og græjar þetta á skikkanlegum tíma væri bara flott niðurstaða,“ segir Karítas.
Fæðingarorlof Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Fjölskyldumál Börn og uppeldi Meðganga Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Sjá meira