Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 1. nóvember 2026 22:01 Tjaldsvæðið er á Egilsstöðum. Vísir/Vilhelm Forsvarsmenn tjaldsvæðisins á Egilsstöðum við Kaupvang mega ekki teygja starfsemi sína vestur yfir götuna. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Austurlands eftir kæru.
Eigendur að Skjólvangi 2, sem stendur við hlið tjaldsvæðisins við Kaupvang, kærðu ákvörðun heilbrigðisnefndar Austurlands um að gefa út starfsleyfi fyrir tjald- og hjólhýsasvæði við Kaupvang 17. Starfsleyfið gaf rekstraraðilum leyfi til þess að nýta svæðið „vestan Kaupvangs“ frá 1. júní til 31. ágúst þegar hið eiginlega tjaldsvæði er fullnýtt. Í Skjólvangi er starfsemi Skattsins á Egilsstöðum. Í kærunni segir eigandi hússins að hann hafi orðið fyrir margvíslegum og neikvæðum áhrifum af rekstri tjaldsvæðisins. Við útgáfu nýja starfsleyfisins sé tjaldsvæðið stærra en heimild til rekstrar hafi áður verið. Stærra tjaldsvæðið liggi því að lóð eigandans og er það ekki tilgreint sem tjaldsvæði í aðal- og deiliskipulagi. Einnig hafi salernisgámur verið á svæðinu frá því um vorið 2025 án nokkurs samráðs eða kynningar af grenndarrétarlegum toga. Hann hafi einnig verið staðsettur nærri inngangi í hús á lóð eigandans, sem gera má ráð fyrir að sé húsnæði Skattsins. Engar kvartanir Í máli Heilbrigðiseftirlits Austurlands kemur fram að ákvörðunin hafi verið byggð á umsögn frá sveitarfélaginu Múlaþingi. Umrætt svæði sé í eigu Múlaþings og sé óbyggð lóð. Það hafi áður verið notað sem tjaldsvæði en sé tilgreint sem miðsvæði í deiliskipulagi og séu fyrirætlanir um að það rísi byggingar. Engar skráðar kvartanir vegna ónæðis hafi borist embættinu frá öðrum en kæranda við meðferð málsins. Fullyrðingar um ónæði, rusl, mikla umferð og sjónmengun hafi því ekki verið studdar með gögnum og því hafi ekki verið tilefni til að synja umsókn um starfsleyfi. Niðurstaða nefndarinnar var sú að tjaldsvæðið sjálft væri í samræmi við skipulag en viðbótarsvæðið vestan við Kaupvang væri það ekki. Því var ákveðið að fella starfsleyfið sem náði til viðbótarsvæðisins úr gildi á meðan hitt héldist óbreytt.
Úrskurðar- og kærunefndir Tjaldsvæði Múlaþing Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Sjá meira