„Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Smári Jökull Jónsson skrifar 1. nóvember 2026 13:02 Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands. Vísir/Sigurjón Formaður Kennarasambandsins segir afar mikilvægt að samkomulag hafi náðst í deilu kennara og sveitarfélagana. Skrifað var undir samkomulag í gærkvöldi, rétt áður en frestur rann út til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningum sem hefði þýtt að kjarasamningar yrðu mögulega lausir í mars.
Deilan snerist um vinnu við svokallað virðismat en í vikunni lögðu stjórnvöld fram tillögu sem var utan þess ramma sem kjarasamningar gerðu ráð fyrir. Vildu kennarar ekki samþykkja þá tillögu en Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari lagði fram sáttatillögu í gær sem samkvæmt heimildum fréttastofu heldur inni fyrirvörum sem kennarar telja mikilvæga og ekki voru hluti af þeirri tillögu sem stjórnvöld lögðu fram í vikunni. „Það eru engar tölulegar breytingar heldur fyrst og fremst voru þarna ákvæði sem kölluðu á frestun og vikan snerist um að koma því í farveg sem að þýddi það að samningurinn bara gæti haldið áfram óbreyttur. Það var engu bætt inn í samninginn sem að sneri að tölulegum þáttum eða slíku,“ sagði Magnús í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Er þá búið að framlengja frest til þess að klára vinnu um virðismat? „Já, það er akkúrat það sem við gerðum í gær og það sem ríkissáttasemjari kom með tillögu um og var að lokum samþykkt, hvernig það var gert.“ Í frétt á vef RÚV er haft eftir Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara að endurskoðunarpunktur, þar sem kjarasamningur sé rýndur og kannað hvort forsendur hafi staðist, hafi verið færður til 15. mars og þá verði staðan tekin á ný. Ástráður segir þar að þá verði komin skýrari mynd af vinnu við virðismat og að þá verði auðveldara fyrir samninganefndir að ákveða hvort þær vilji halda áfram eða segja kjarasamningum upp. Vikan hafi skilað ávinningi fyrir alla Hann segir gríðarlega mikilvægt að samkomulag hafi náðst, vikan hafi verið strembin en dagurinn í gær hafi verið góður. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra tjáði sig um stöðu mála á föstudag og segist Magnús nú vongóður um að allir sem að málinu komi gangi í takt. „Við skulum orða það þannig að við höfum væntingar um það að verkefnið sé núna skýrara í öllum hornum og að vikan hafi að lokum skilað því að allir hafi fengið einhvers konar vinning, báðar samninganefndir.“
Skóla- og menntamál Kjaramál Vinnumarkaður Sveitarstjórnarmál Grunnskólar Framhaldsskólar Leikskólar Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira