Kauphöllin

Kauphöllin

Fréttir úr Kauphöllinni á Íslandi og af skráðum félögum á markaði.

Fréttamynd

Rauður dagur í Kaup­höllinni

Kauphöllin var lengst af glóandi rauð í dag. Örfá fyrirtæki náðu þó að snúa vörn í sókn síðustu klukkustundina af opnun hennar og enduðu í grænu. Mest var hækkun Haga upp á 0,81% en viðskipti með bréf félagsins námu sextíu og þremur milljónum. Mesta lækkunin varð á bréfum Alvotech, um 4,76%, í viðskiptum upp á tæpar nítíu og fimm milljónir.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykja­víkur­flug­völl

Sérstakt mat þarf að fara fram á því hvort Reykjavíkurflugvöllur uppfylli kröfur til að nýjar Airbus A321-þotur Icelandair geti nýtt hann sem varaflugvöll. Ástæðan er sú að Airbus-þotan er skilgreind sem 4C loftfar meðan viðmiðunarkóði flugvallarins er lægri eða 3C. Þetta þarf þó að mati Icelandair-manna ekki að hindra að Airbus A321 fái leyfi til að nota flugvöllinn þar sem þetta séu viðmiðunarkóðar en ekki rekstrartakmörkun fyrir loftför.

Innlent
Fréttamynd

Valin versti ljós­myndari heims

Blanche Mortemard, íbúi í París, hefur verið valin versti ljósmyndari heims af Icelandair. Hún mun nú ferðast um Ísland í tíu daga á vegum Icelandair í því skyni að sanna að jafnvel versti ljósmyndari geti tekið fallegar myndir af Íslandi.

Lífið
Fréttamynd

Ræða mögu­leika á næsta á fundi í kjara­deilu Icelandair

Ekki hefur enn verið boðað til fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Síðasti fundur var á föstudag. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir þó samtöl í gangi milli deiluaðila um áframhaldandi viðræður. Ef tækist að koma á fundi yrði hann mögulega haldinn þegar líður á vikuna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flug­menn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið

Enn einni flugferð Icelandair var aflýst í morgun þar sem flugmenn fengust ekki á vaktina. Ferðin átti að vera til Zurich í Sviss en frá því að kjaradeilu félagsins og flugmanna þess var vísað til ríkissáttasemjara í upphafi mánaðar hefur alls tuttugu brottförum frá Keflavík verið aflýst, eða samanlagt fjörutíu ferðum til og frá landinu.

Innlent
Fréttamynd

Er­lendir grein­endur lækka verðmöt sín um ríf­lega fjórðung eftir á­fallið hjá Ocu­lis

Greinendur fjölmargra erlendra fjármálastofnana hafa að meðaltali lækkað verðmat sitt á Oculis um ríflega fjórðung eftir að eitt lyfjum þess tókst ekki að ná markmiðum sínum í lykilrannsókn en telja félagið eftir sem áður verulega undirverðlagt á markaði. Gengi bréfa Oculis hélt áfram að lækka þegar markaðir opnuðu vestanhafs í dag.

Innherji
Fréttamynd

Hækkar verðmatið á Icelandair þótt út­lit sé fyrir yfir tíu milljarða rekstrar­tap

Þrátt fyrir að óvissan hafi sjaldan verið meiri í rekstri Icelandair, einkum vegna hækkandi eldsneytisverðs og kjaradeilna við flugmenn, þá er félagið verðmetið á nærri tvöfalt hærra verði en núverandi markaðsgengi í nýrri greiningu. Því er spáð að Icelandair muni skila yfir tíu milljarða króna rekstrartapi á þessu ári en áður var áætlað að afkoman yrði kringum núllið.

Innherji
Fréttamynd

Flug­maður hjá Icelandair opnar bók­haldið

Flugmaður hjá Icelandair segir ekki við flugmenn að sakast að þeir vilji ekki selja frá sér kjarasamningsbundna frídaga. Þeir séu aðeins níu í hverjum mánuði og ekki sé hægt að byggja rekstur heils flugfélags á að stöðugt sé gengið á þá.

Innlent
Fréttamynd

Einar ein­beitir sér að norður­slóðum og Hjalti tekur við

Hjalti Már Hauksson hefur tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar, sem er hluti af fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka. Einar Pálmi Sigmundsson, sem undanfarið ár hefur gegnt starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar, tekur við nýju hlutverki á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Grein­endur „hissa“ með niður­stöðuna hjá Ocu­lis en mæla enn með kaupum

Greinendur hafa lækkað verðmöt sín á Oculis eftir að ljóst varð að eitt af þremur þróunarlyfjum þess mistókst að ná markmiðum sínum í lykilrannsóknum en taka fram að þrátt fyrir vonbrigðin þá sé virði félagsins einkum byggt á lyfinu Privosegtor (OSC-05), sem er til meðferðar við bráðri sjóntaugabólgu, og mæla enn með kaupum. Líklegt er talið að gengi bréfa Oculis muni í kjölfarið haldast í kringum 15 til 20 dalir á hlut, um og yfir þriðjungi lægra en fyrir helgi.

Innherji
Fréttamynd

Tuttugustu ferð Icelandair af­lýst vegna mann­eklu

Ferð Icelandair til Zürich í Sviss var aflýst í morgun þar sem ekki tókst að manna hana flugmönnum. Flugfélagið hefur nú þurft að aflýsa tuttugu brottförum frá Keflavík síðasta mánuðinn vegna þess að flugmenn fást ekki til þess að selja frídaga sína.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni

Flugáhugamenn sem lögðu leið sína á hina árlegu flugsýningu Flugmálafélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í gær undruðust margir að sjá enga af þotum Icelandair birtast, hvorki á flugvellinum sjálfum né í yfirflugi yfir hann. Sumir spurðu sig jafnvel hvort samskipti félagsins og flugmanna þess væru í slíku frosti að ekki væri einu sinni hægt að taka þátt í flughátíð.

Innlent
Fréttamynd

Í stormi reynir á leið­togana

Það eru blikur á lofti hjá Icelandair. Olíuverð hefur hækkað, samkeppnin á alþjóðlegum flugmarkaði harðnar og óleystar kjaradeilur við bæði flugmenn og flugvirkja eru nú komnar inn á borð ríkissáttasemjara. Á sama tíma hafa aflýsingar og tafir vegna áhafnaskorts sýnt hversu viðkvæmt rekstrarumhverfið er orðið þegar sumarvertíðin er að hefjast.

Skoðun
Fréttamynd

Fleiri ferðir felldar niður og ekkert sam­komu­lag í sjón­máli

Kjaradeila Icelandair og flugmanna er orðin að stærri umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni. Meðal stærstu hluthafa eru íslenskir lífeyrissjóðir sem eiga saman stærri hlut en stærsti einstaki hluthafinn.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lenskir fjár­festar verða fyrir tug­milljarða höggi við gengis­hrun Ocu­lis

Eitt af þremur þróunarlyfjum Oculis, sem fjárfestar höfðu bundið miklar vonir við, mistókst að ná aðalmarkmiðum sínum þegar niðurstöður úr tveimur fasa 3 rannsóknum voru tilkynntar síðla dags í gær og því verður ekki sótt um markaðsleyfi hjá FDA. Markaðsvirði félagsins, sem var áður um 250 milljarðar, féll í kjölfarið um helming á Bandaríkjamarkaði en íslenskir fjárfestar – einkum lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og spákaupamenn – verða fyrir umtalsverðu höggi sem á eftir að smitast yfir á hlutabréfamarkaðinn í heild sinni.

Innherji
Fréttamynd

Sam­komu­lagi náð og verk­falli af­lýst

Eimskip og Sjómannafélag Íslands (SÍ) hafa undirritað samkomulag um að aflýsa verkfalli háseta og bátsmanna á þremur skipum félagsins.  Á mánudag, þann 25. maí, hófu hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands ótímabundið verkfall á stærstu skipum félagsins: Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi. 

Innlent
Fréttamynd

Á­kvörðun um næsta fund tekin yfir helgina

Fundi samninganefnda Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkissáttasemjara lauk í dag án þess að boðað væri til nýs fundar. Samkvæmt upplýsingum frá ríkissáttasemjara verður ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina.

Viðskipti innlent