Viðskipti innlent

Tekur við stjórn Fyrir­tækja­miðstöðvar Ís­lands­banka

Atli Ísleifsson skrifar
Sigurður Arnar Hermannsson.
Sigurður Arnar Hermannsson. Íslandsbanki

Sigurður Arnar Hermannsson hefur tekið við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka.

Í tilkynningu segir að Sigurður Arnar hafi starfað í fjármálageiranum í 23 ár og gegnt fjölbreyttum stjórnunarstörfum. 

„Síðustu sex ár hefur hann verið forstöðumaður Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka í Norðurturni ásamt Birni Sveinssyni, sem nú lætur af störfum eftir rúmlega 40 ára farsælan starfsferil hjá Íslandsbanka og fyrirrennurum hans. Björn hefur gegnt lykilhlutverki innan bankans um áratugaskeið og lagt mikið af mörkum til uppbyggingar og þróunar fyrirtækjaþjónustu bankans,“ segir í tilkynningunni.

„Sigurður Arnar hefur víðtæka reynslu af fyrirtækjaþjónustu og hefur sýnt öfluga leiðtogahæfileika í störfum sínum innan bankans. Ég er afar ánægð með að hann taki við því hlutverki að leiða þjónustu okkar við lítil og meðalstór fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og viðhalda þeirri sterku stöðu sem við höfum byggt upp, bæði hvað varðar markaðshlutdeild og góða þjónustu,“ er haft eftir Unu Steinsdóttur, framkvæmdastjóra Fyrirtækjasviðs Íslandsbanka.

Sigurður Arnar lauk M.Sc.-gráðu í fjármálum og alþjóðaviðskiptum frá Aarhus School of Business árið 2007. Hann er jafnframt með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Haft er eftir Sigurði að hann sé þakklátur fyrir það traust sem sér sé sýnt og hlakki hann til að leiða áfram öflugt teymi Fyrirtækjamiðstöðvarinnar. „Við búum yfir mikilli reynslu og þekkingu og munum áfram leggja áherslu á náin tengsl við viðskiptavini, framúrskarandi þjónustu og lausnir sem styðja við vöxt og árangur íslenskra fyrirtækja,“ segir Sigurður Arnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×