Viðskipti innlent

Malasar í sam­starf við GreenFish

Bjarki Sigurðsson skrifar
Frá vinstri: Paul Leong, viðskiptaþróunarstjóri Supratechnic; Lim  Jim Wei, forstöðumaður tækniþróunar Supratechnic; Melvin Tan, forstjóri Supratechnic;  James Kohr, ræðismaður Íslands í Malasíu; Baldur S. Blöndal, rekstrarstjóri GreenFish;  Lim Boon Sue, rekstrarstjóri Supratechnic; Khor Hooi Ping, ritari stjórnar.
Frá vinstri: Paul Leong, viðskiptaþróunarstjóri Supratechnic; Lim Jim Wei, forstöðumaður tækniþróunar Supratechnic; Melvin Tan, forstjóri Supratechnic; James Kohr, ræðismaður Íslands í Malasíu; Baldur S. Blöndal, rekstrarstjóri GreenFish; Lim Boon Sue, rekstrarstjóri Supratechnic; Khor Hooi Ping, ritari stjórnar. GreenFish

Íslenska tæknifyrirtækið GreenFish undirritaði í dag samstarfssamning við Supratechnic, sem er hluti af USP Group Ltd., um að koma Afla, nýju smáforriti GreenFish fyrir smábátaútgerðir, á markað í Malasíu, Singapúr og Indónesíu.

GreenFish er íslenskt tæknifyrirtæki sem hefur þróað hugbúnað fyrir útgerðir sem spáir fyrir um staðsetningu fiskimiða fram í tímann. Hugbúnaður félagsins er nú þegar í notkun hjá útgerðum í öllum heimsálfum. 

Leiðandi fyrirtæki

Samkvæmt samningnum mun Supratechnic dreifa hinu nýja forriti Afla í Malasíu, Singapúr og Indónesíu og taka þátt í áframhaldandi þróun þess. SuprAI Capital Pte. Ltd., systurfélag innan USP Group, leiðir stefnumótun samstæðunnar í verkefninu og vinnur með GreenFish að staðfærslu og nýjum eiginleikum. Supratechnic sér um markaðssetningu og sölu smáforritsins og þjónustar notendur í gegnum útibúanet sitt.

Frá undirrituninni.GreenFish

Supratechnic hefur þjónustað smábátaútgerðir í Suðaustur-Asíu í meira en fimm áratugi. Samstæðan á rætur að rekja til Singapúr en saga hennar nær aftur til ársins 1968. Supratechnic er nú eitt af leiðandi þjónustufyrirtækjum fyrir smábátaútgerðir, með útibú um gervalla Malasíu og víðar.

Erfiðar aðstæður

„Afli byggir á grunntækni GreenFish sem sameinar gervigreind, gervihnattagögn og veiðigögn til að spá fyrir um hvar fisk er að finna. Spárnar eru uppfærðar nokkrum sinnum á dag og eru vistaðar í símanum svo hægt sé að skoða þær utan farsímasambands. Afli er hannaður fyrir báta undir 40 brúttótonnum og keyrir á síma sjómannsins, án vélbúnaðar. Appið verður fáanlegt á malasísku, ensku, kínversku og indónesísku,“ segir í tilkynningu frá GreenFish.

„Við höfum lengi viljað vinna með smábátaútgerðum í Malasíu. Þær veiða oft við erfiðar aðstæður, þannig að hver ferð þarf að skila sínu. Við erum ánægð að hafa traustan  samstarfsaðila í Supratechnic, sem hefur þjónað þessum samfélögum í meira en fimm áratugi. Saman ætlum við að sannreyna Afla á heimamiðum, í gegnum monsúntímabilið, áður en hann verður boðinn víðar. Það sem við afhendum smábátaútgerðum þarf að virka þar sem þær veiða. Tækni okkar og aðferðir hafa sannað sig hjá stærri útgerðum og við hlökkum til að vinna með öflugu teymi Supratechnic að því að koma sambærilegum tólum í hendur smábátaútgerða í Malasíu,“ er haft eftir Baldri Blöndal, rekstrarstjóra GreenFish í tilkynningunni. 

Baldur Blöndal er rekstrarstjóri GreenFish.GreenFish





Fleiri fréttir

Sjá meira


×