Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Árni Sæberg skrifar 5. október 2026 10:26 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Vísir/Anton Brink Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA.
Í tilkynningu þess efnis á vef VR segir að félagið, LÍV og Fagfélögin hafi ítrekað lagt fram tillögur að lausnum til að kjarasamningar geti haldið en Samtök atvinnulífsins hafi ekki sýnt neina viðleitni til að mæta þeirri stöðu sem launafólk sé í vegna forsendubrests kjarasamninga. Þrír dagar til stefnu Trúnaðarráð félagsins sé stjórninni til ráðgjafar og muni ræða stöðuna og næstu skref á fundinum, sem hefjist klukkan 17:30. Stjórn VR, sem jafnframt sé samninganefnd félagsins, fundi í kjölfarið og taki afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA. Segja verði upp samningum í síðasta lagi síðdegis næstkomandi fimmtudag, 8. október. „Stórir hópar okkar félagsfólks hafa tekið á sig launalækkanir undanliðin tvö ár, þar sem almennar hækkanir samkvæmt kjarasamningum hafa verið undir verðbólgu og álögur hafa verið auknar á barnafólk. Þegar forsendubresturinn lá fyrir fórum við með greiningu á þessum vanda til Samtaka atvinnulífsins og óskuðum eftir hóflegum leiðréttingum fyrir okkar félagsfólk. Því var hafnað með öllu með vísan til þess að við þyrftum að hafa áfram „trú á verkefninu“. Þann 24. september sl. lögðum við fram nýjar tillögur til lausna á vandanum sem fælu í sér í forsenduákvæði sem myndu virkjast ef þessi kjararýrnun héldi áfram. Síðan eru liðnir ellefu dagar og við höfum engin viðbrögð fengið frá SA. Líklega hafa samtökin sjálf ekki trú á verkefninu,“ er haft eftir Höllu Gunnarsdóttur, formanni VR. SA skili auðu Þá er haft eftir henni að sveitarfélögin, sem mörg hver séu aðþrengd, hafi stigið fram og lýst yfir vilja til að leggja hönd á plóg. Ríkisstjórnin hafi sýnt á spilin og fjöldi fyrirtækja hafi nú þegar sýnt í verki vilja til að tryggja að kjarasamningar geti haldið. „En Samtök atvinnulífsins hafa skilað algjörlega auðu og nú eru aðeins þrír dagar til stefnu. Þannig að eina svarið sem okkar félagsfólk hefur fengið frá SA er að það eigi að halda áfram að taka á sig launalækkanir í hálft annað ár til viðbótar. Við það verður ekki unað. Því vakna spurningar um hvort SA vilji í raun og veru að kjarasamningar haldi, að minnsta kosti hafa þau ekki sýnt neinn samningsvilja eða yfirleitt mætt með lausnamiðað hugarfar.“
Stéttarfélög Kjaramál Atvinnurekendur Efnahagsmál Vinnumarkaður Kjaraviðræður 2023-25 Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira