Viðskipti innlent

Lands­virkjun og Elkem semja til 2039

Atli Ísleifsson skrifar
Frá undirrituninni í dag.
Frá undirrituninni í dag. Landsvirkjun

Landsvirkjun og Elkem hafa skrifað undir nýjan samning um raforkukaup kísiljárnverksmiðjunnar á Grundartanga.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að fyrri samningur fyrirtækjanna hafi verið til 2029 en sá nýi gildi til 2039. Samningsmagn er sé, 127 MW.

„Viðskiptasamband fyrirtækjanna á rætur að rekja allt aftur til 1975 og Elkem er því einn af elstu stórviðskiptavinum Landsvirkjunar. Nýi samningurinn kemur í stað gildandi samnings og gildir til ársins 2039. Hann tekur til 127 MW samningsbundinnar afhendingar og veitir báðum aðilum aukinn sveigjanleika. Frá apríl 2029 felur samningurinn í sér raforkuverð með föstu lágmarksverði og hlutbundinni tengingu við markaðsverð á kísiljárni. Þannig njóta báðir aðilar ávinnings þegar verð á kísiljárni hækkar, jafnframt því sem samkeppnishæfni verksmiðjunnar er tryggð á tímabilum þegar markaðsverð er lægra.

Styrkir farsælt samband

Kísiljárnverksmiðjan hóf starfsemi ári 1979 og er meginstarfsemi félagsins framleiðsla og sala á kísiljárni, með áherslu á sérhæfðar vörur sem notaðar eru við framleiðslu á hágæða stáli. Einnig framleiðir Elkem kísilryk sem notað er í sement og steypu um allan heim.

Verksmiðjan á Grundartanga er með þrjá ofna, með áherslu á framleiðslu verðmætra sérvara, einkum svokallað High Purity Ferrosilicon. Sérvara Elkem er notuð í rafmagnsstál í rafölum, rafmótorum og spennum sem enda t.d. í rafbílum og vindmyllum. Á starfstíma verksmiðjunnar hefur raforkusamningi verið breytt og hann framlengdur nokkrum sinnum,“ segir í tilkynningunni.

Styður við framtíðarþróun

Haft er eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar, að Landsvirkjun fagni því að hafa náð nýju samkomulagi við Elkem, einum af elstu viðskiptavinum Landsvirkjunar. „Fyrirtækin hafa átt farsælt samstarf í áratugi og styrkir þessi samningur þann grunn enn frekar. Við hlökkum til að halda samstarfinu áfram og styðja við framtíðarþróun starfsemi Elkem á Íslandi.“

Þá er haft eftir Birki Guðmundarsyni, starfandi forstjóra Elkem á Íslandi, að samningurinn undirstriki gildi þess langa og góða samstarfs sem Elkem og Landsvirkjun hafi átt. „Hann eykur fyrirsjáanleika í rekstri og styður við þann sveigjanleika sem við þurfum til að halda áfram að bæta afkomu verksmiðjunnar og meta ný sóknartækifæri til framtíðar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×