Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Kristján Már Unnarsson skrifar 18. október 2026 22:02 Hótel Kulusuk er með 34 gistiherbergi. Hotel Kulusuk Eigandi eina hótelsins í Kulusuk á Grænlandi hefur skellt í lás og ákveðið að hafa lokað í allan vetur. Ástæðuna segir hann vera þá að enginn stuðningur fáist frá landsstjórninni eftir að Icelandair hætti flugi milli Íslands og Kulusuk yfir vetrarmánuði.
Í frétt grænlenska fréttamiðilsins KNR segir að öllu starfsfólki Hótels Kulusuk hafi verið sagt upp. Án viðskiptavina frá Íslandi sé ekki lengur hægt að hafa starfsmenn. Þeir myndu reika um á milli tómra gistiherbergja. „Það er það versta. Starfsfólkið verður að leita á náðir sveitarfélagsins eftir félagslegri aðstoð,“ er haft eftir Mike Nicolaisen, eiganda hótelsins, í viðtali við KNR. Dash 8 Q400-flugvél Icelandair að renna upp að flugstöðinni í Kulusuk í september í fyrra.Egill Aðalsteinsson Á eynni Kulusuk búa um 240 manns. Flugvöllurinn þar þjónar hins vegar einnig bænum Tasiilaq, áður Angmagssalik. Þar búa um 2.000 manns og er hann langstærsta byggð austurstrandar Grænlands. Icelandair tilkynnti í byrjun sumars að áætlunarflugi félagsins milli Keflavíkur og Kulusuk yfir vetrarmánuði yrði hætt í haust. Kulusuk yrði aðeins sumaráfangastaður frá júníbyrjun til septemberloka. Icelandair hafði áður dregið úr þjónustunni í ársbyrjun 2025 með því að hætta flugi til Kulusuk í janúar- og febrúarmánuðum. Í frétt Vísis þann 7. október síðastliðinn var rætt við Jens-Frederik Nielsen, formann grænlensku landstjórnarinnar, um málið: Talsmaður Icelandair, Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi, sagði í viðtali við Vísi í sumar að reynst hefði krefjandi að halda flugleiðinni úti við núverandi rekstraraðstæður, meðal annars vegna mikilla hækkana á eldsneytisverði. Icelandair þyrfti að leggja áherslu á flugleiðir og -tímabil sem hægt væri að reka á viðskiptalega sjálfbærum grunni. Eigandi Hótels Kulusuk, Mike Nicolaisen, lýsti í sömu frétt á Vísi miklum áhyggjum vegna þeirra afleiðinga sem missir Íslandsflugsins hefði fyrir byggðirnar á Austur-Grænlandi. Hann boðaði þá lokun hótelsins yfir vetrarmánuði en hvatti landsstjórn Grænlands til að ræða við Icelandair eða íslenska ríkið og taka sameiginlega afstöðu með austur-grænlenska samfélaginu. Air Greenland, flugfélag landsstjórnarinnar, flýgur tvisvar í viku milli Kulusuk og Nuuk í vetur. Það dugar þó ekki til að hóteleigandinn treysti sér til að hafa opið í vetur. Hann segir að ferðalangar frá Nuuk og Tasiilaq gætu neyðst í vetur til að gista í flugstöðinni í Kulusuk. „Það eru margir sem skilja ekki þessar afleiðingar. Jafnvel í landsstjórninni okkar eru sumir sem skilja ekki mikilvægi tengsla okkar við Ísland,“ segir Mike Nicolaisen í frétt KNR. Þar segist hann hafa leitað eftir fjárhagsstuðningi frá landsstjórninni til að geta haft opið í vetur en talað fyrir daufum eyrum. Þess má geta að flugfélagið Norlandair á Akureyri sinnir áætlunarflugi til Scoresbysunds á austurströndinni samkvæmt samningi við grænlensk stjórnvöld. Sjá mátti lendingu Icelandair-vélar á flugvellinum í Kulusuk í þessari sjónvarpsfrétt Sýnar í fyrrahaust: Fjallað var um mikilvægi flugsamgangna fyrir Grænlendinga í þætti Flugþjóðarinnar á Sýn um Grænlandsflugið fyrr á árinu. Hér má sjá átta mínútna kafla úr þættinum: Í þættinum var jafnframt fjallað um áratuga samstarf Íslendinga og Grænlendinga í flugmálum, eins og sjá má dæmi um í þessum sex mínútna kafla:
Grænland Flug Icelandair Ferðaþjónusta Flugþjóðin Tengdar fréttir Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Icelandair hefur ákveðið að hætta flug til milli Íslands og Kulusuk á austurströnd Grænlands utan sumarmánuðanna. Frá og með áramótum verður aðeins flogið milli maí og október. 9. júní 2026 14:55 Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Íbúar í bænum Tasiilaq, stærsta bæ Austur-Grænlands, stóðu fyrir fjölmennri kröfugöngu síðastliðinn sunnudag þar sem mótmælt var einangrun og pólitísku afskiptaleysi gagnvart íbúum byggða á austurströnd landsins, þeirra sem næst eru Íslandi. Samtímis var efnt til samstöðugöngu í höfuðstaðnum Nuuk á vesturströndinni. 21. maí 2025 23:44 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira
Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Icelandair hefur ákveðið að hætta flug til milli Íslands og Kulusuk á austurströnd Grænlands utan sumarmánuðanna. Frá og með áramótum verður aðeins flogið milli maí og október. 9. júní 2026 14:55
Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Íbúar í bænum Tasiilaq, stærsta bæ Austur-Grænlands, stóðu fyrir fjölmennri kröfugöngu síðastliðinn sunnudag þar sem mótmælt var einangrun og pólitísku afskiptaleysi gagnvart íbúum byggða á austurströnd landsins, þeirra sem næst eru Íslandi. Samtímis var efnt til samstöðugöngu í höfuðstaðnum Nuuk á vesturströndinni. 21. maí 2025 23:44