Innlent

Flúði tára­gas lög­reglu í Nice

Lovísa Arnardóttir skrifar
Myndir sem Einar Baldvin tók á leið sinni á ströndina.
Myndir sem Einar Baldvin tók á leið sinni á ströndina. Aðsendar

Einar Baldvin Brimar flúði táragas lögreglunnar í Nice í Frakklandi í gær á heimleið sinni af ströndinni. Hann sá fyrr um daginn mótmælendur safnast saman, friðsamlega, en á heimleið hafi mótmælin verið búin að harðna. 

Greint hefur verið frá því að um 1.800 manns hafi verið handtekin á mótmælunum víða um Frakkland og um 500 lögreglumenn og slökkviliðsmenn séu slasaðir. Í frétt BBC segir að mótmælin hafi að mestu leyti farið friðsamlega fram og er talið að um hálf milljón mótmælenda hafi tekið þátt. 

Hluti mótmælenda hafa þó farið fram með ófriðsamlegum hætti, sumir svartklæddir og með grímur og lambhúshettur, hafa látið til sín taka í París, Marseille og öðrum bæjum og borgum, og kveiktu sumir þeirra í bílum og byggingum. Komið hefur til átaka á milli þessara hópa og lögreglunnar. 

„Ég er í fríi í Nice í góða viku að sleikja sólina eftir erfitt sumar,“ segir Einar Baldvin í samtali við fréttastofu.

@nice_matin

Depuis près d'une heure, les forces de l'ordre tentent de disperser la foule place Masséna, à Nice. Les plots de la ligne du tram ont été arrachés comme on peut le voir sur ces images, tandis que la police riposte avec des gaz lacrymogènes. Des manifestants sont partis du côté du Vieux-Nice et de la Promenade des Anglais, tandis que nos journalistes constatent qu'il y a toujours du monde sur Masséna. Pour plus d'informations, suivez notre live sur nicematin.com

♬ son original - nice_matin

Hann segir mótmælin hafa komið sér á óvart, hann hafi ekki fylgst vel með fréttum í aðdraganda ferðarinnar en hafi strax á leið sinni á ströndina í gær séð að eitthvað væri í gangi. Hér að ofan má sjá myndefni frá Nice tekið í gær. 

„Það voru milljónir lögreglubíla, og rosalega skrítið, allir í geðveikum gír og geggjaðir tónleikar fyrir og stemning.“

Stemningin önnur seinnipartinn

Á heimleið hafi stemningin svo verið búin að breytast.

„Svo eyddi ég deginum á ströndinni og er að ganga til baka á hótelið þegar það byrja 400 manns að hlaupa í áttina að mér og svo heyrast bara háir hvellir og þá er skotið táragasi yfir allt torgið og mannskapinn.“

Einar er í fríi í Nice. Aðsend

Hann segist ekki hafa fengið neitt á sig.

„Ég hljóp bara samferða þessu liði sem var að forða sér undan þessu en þessu var meira beint að mönnum sem voru búnir að kveikja í einhverjum lögreglubíl og ráðast inn í Gallery Lafayette.“

Einar Baldvin segist ekki hafa verið hræddur og segir þetta áhugaverða upplifun. Það séu yfirleitt ekki svona hörð mótmæli á Íslandi og þetta því ekkert sem hann kannast við.

„Ég var ekkert að pæla í því hvernig mér leið, heldur var bara að hlaupa samferða 400 manns sem var í stemningu og að hlæja. Þetta er mjög súrrealískt.“

Mótmælin haldi áfram

Hann segir að þó svo að hann hafi upplifað slíka stemningu hafi mótmælin verið harðari skammt frá og hann orðið var við ofbeldi.

„Það var alveg ofbeldi hundrað metrum frá. Þar sá maður alveg lögregluna ýta… Þannig að þar var búið að kveikja í lögreglubíl og menn að lemja í rúður og eitthvað svoleiðis.“

Einar Baldvin er í Nice til miðvikudags og hefur heyrt af öðrum mótmælum næsta miðvikudag sem gætu orðið enn harðari. Hann hefur ekki miklar áhyggjur af því en hefur fengið leiðbeiningar um að halda sig frá ákveðnum stöðum borgarinnar.

„Það er Masséna-torgið sem er aðaltorgið hérna af því að það eru grímuklædd ungmenni sem eru samt bara friðsamleg eftir því sem ég veit.“

Mótmælaalda

Mótmælin fylgja þriggja vikna mótmælaöldu undir forystu stúdenta víðs vegar um landið. Reiði vegna fjarvista kennara og lélegs aðbúnaðar í skólum breyttist fljótt í landsmótmæli gegn ójöfnuði, ónógum opinberum útgjöldum og versnandi gæðum menntunar.

Kallað hefur verið eftir því að verkalýðsfélög og áberandi einstaklingar úr hinni gulra vesta hreyfingu-hreyfingu frá 2018 taki þátt í mótmælunum. CGT, eitt stærsta verkalýðsfélag Frakklands, hefur lýst yfir stuðningi við mótmælin og kallað eftir „hærri launum og lífeyri, lægra verðlagi og verndun opinberrar þjónustu sem mætir þörfum fólks“.

Stjórnvöld hafa reynt að koma til móts við kröfurnar, en Édouard Geffray menntamálaráðherra lofaði 3.000 forfallakennurum til viðbótar í sjónvarpsviðtali 8. október en mótmælin hafa aðeins haldið áfram og harðnað eftir það.


Tengdar fréttir

„Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“

Einar Baldvin Brimar starfar á lögmannsstofu á daginn og semur leikrit á kvöldin en leikritaskrifin spruttu upp úr píslargöngu sem hann þreytti við að læra kröfurétt. Á föstudag verður Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks, sem hann lýsir sem blöndu af Die Hard, Shakespeare og grískum harmleikjum, frumsýnt í Háskólabíói en þar birtist Gugga í gúmmíbát sem frummynd fegurðar.

Jóhann er 83 ára og sjóðandi heitur á Tinder

Þeir Jóhann Scheihter og Einar Baldvin Brimar bjuggu saman í íbúð í þrjá daga síðasta sumar. Jóhann er fæddur árið 1940 og starfar sem leiðsögumaður. Einar Baldvin er 25 ára heimsspeki- og laganemi, og þjálfar einnig ungt fólk í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×