Innlent

Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lögreglan handtók tvo í miðbænum. 
Lögreglan handtók tvo í miðbænum.  Vísir

Einn var handtekinn í miðbænum í Reykjavík í gærkvöldi eða nótt vegna líkamsárásar. Samkvæmt dagbók lögreglu var hann vistaður í fangaklefa. Ekki kemur nánar fram í dagbók lögreglu hvar eða hvenær atvikið átti sér stað.

Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn.

Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í fangaklefa og alls 74 mál bókuð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17 í gær til fimm í morgun.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ökumönnum vegna ýmissa umferðarlagabrota og vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Þá var tilkynnt um umferðaróhapp í bæði Hafnarfirði og Grafarvogi.

Þá segir að lögregla hafi einnig haft afskipti af einstaklingi sem var til vandræða í líkamsræktarstöð. Ekki kemur fram hvar en Stöð 1 sinnti útkallinu sem sinnir útköllum í vesturhluta borgarinnar.


Tengdar fréttir

Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför

Einn ungur ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Suðurlandsvegi eftir að hafa verið mældur á 151 kílómetra hraða. Lögregla sinnti eftirför í Kópavogi og Fossvogi. Ökumennirnir reyndu báðir að flýja á fótum eftir að hafa stöðvað bíla sína. 

Hand­tekinn fyrir hótanir og vopna­laga­brot

Einn var handtekinn af lögreglu fyrir hótanir og brot á vopnalagabrotum en greint er frá atvikinu í dagbók lögreglunnar. Einnig voru ökumenn sektaðir fyrir að nota farsíma við akstur og aka án þess að vera með próf.

Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot þar sem bíll var skilinn eftir á vettvangi. Þýfið reyndist vera inni í bílnum, sem var líka stolinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×