Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Lögreglu á stöð þrjú var í dag gert viðvart um þjófnað í verslun í hverfi 200 í Kópavogi en til handalögmála kom milli öryggisvarðar í versluninni og meints þjófs. Málið var afgreitt af lögreglu en ekki liggur fyrir hvort alvarlegir áverkar hafi hlotist af slagsmálunum. Innlent 22.8.2026 17:43
Aftur í skólastjórastólinn Valdimar Víðisson, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar og oddviti Framsóknarflokksins, hefur tekið við sem skólastjóri Húsaskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Fyrir bæjarstjóratíð hans var hann skólastjóri Öldutúnsskóla í um sextán ár. Innlent 22.8.2026 11:48
Eldur kviknaði við Stálhellu Eldur kviknaði við Stálhellu í Hafnarfirði í kvöld. Slökkvilið var sent á vettvang til að ráða niðurlögum eldsins. Innlent 20.8.2026 00:28
Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er 60 kílómetrar á klukkustund eða meiri á meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst. Innlent 11. ágúst 2026 14:57
„Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Það var margt um manninn og mikið um dýrðir síðasta sólarhringinn á höfuðborgarsvæðinu en slökkviliðsfólk hafði þar af leiðandi í nægu að snúast. Vanalega er slökkviliðið ræst út talsvert oftar á dagvöktum en næturvöktum en því var öfugt farið í þetta skiptið. Innlent 9. ágúst 2026 11:22
„Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Gugga mætti á Hjarta Hafnarfjarðar í nýjasta þættinum af Gugga fer á djammið, tók púlsinn á gestum og lagði fyrir þá krefjandi spurningar: Hvað myndirðu gefa fyrrverandi útlitslega? Ef pabbi þinn væri ekki pabbi þinn, myndirðu hann? Hver er uppáhalds kynlífsstellingin þín? Lífið 6. ágúst 2026 10:28
Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda Húsráðandi á Seltjarnarnesi lenti illa í dósaþjófi sem ráfaði um garð sinn. Eftir að hafa tilkynnt konuna, sem vígbúin var dósum og öðru slíku, til lögreglu hélt húsráðandi út í garðinn og reyndi að ræða við konuna. Hún brást þá hin versta við og hótaði að bíta hann. Innlent 5. ágúst 2026 17:45
Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Fyrirtækið Vallarbraut ehf., sem er til húsa í Trönuhrauni í Hafnarfirði, lýsir eftir svartri íslenskri landnámshænu sem slapp úr búri sínu. Fréttir 29. júlí 2026 13:38
Slökkti sjálfur eldinn Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um reyk og eld við einbýlishús við Sævang í Hafnarfirði á fjórða tímanum í dag. Slökkvilið sendi bíla á staðinn en þá var búið að slökkva eldinn. Innlent 28. júlí 2026 15:39
Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Lögreglunni var tilkynnt um vinnuslys, í gærkvöldi eða um nýliðna nótt, í Kópavogi. Einn var fluttur á bráðamóttökuna með sjúkrabíl með áverka á höfði. Innlent 26. júlí 2026 09:58
Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Meðal þess helsta á lista lögreglustöðvar eitt, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi, var tilkynning um líkamsárás þar sem aðila var fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss. Þeir sem fleygðu honum fram af fundust skammt frá vettvangi og voru handteknir en árásarþoli var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka. Málið er enn í rannsókn. Innlent 25. júlí 2026 07:59
Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Sjúkraflutningar um helgina voru fleiri en vant er. Eitt þeirra útkalla sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í á laugardaginn var vegna barns sem hafði læsts inni á baðherbergi en engum varð meint af. Innlent 20. júlí 2026 16:59
GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Það ríkti mikil tilhlökkun eitt fagurt en blautt sumarkvöld þegar tveir vinsælir tónlistarmenn sameinuðu krafta sína í Bæjarbíói. Fyrirfram mátti velta því fyrir sér hvernig hin yfirvegaða og innhverfa nálgun Guðrúnar Ýrar Eyfjörð, GDRN, myndi falla að þeirri takmarkalausu, og oft ofvirku, orku sem einkennir Jón Jónsson. Þetta hefði hæglega getað orðið eins og hjónaband rauðbrystings og risaeðlu. Á köflum var það nákvæmlega þannig, en undarlega oft myndaðist þó magnað jafnvægi. Lífið 18. júlí 2026 07:01
Halldór Árni Sveinsson er látinn Halldór Árni Sveinsson, myndlistar- og fjölmiðlamaður og kennari, er látinn. Halldór Árni var fæddur 22. febrúar 1955 en hann varð bráðkvaddur að heimili sínu í Hafnarfirði. Innlent 17. júlí 2026 09:11
Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Lögreglunni barst í dag tilkynning um innbrot á varðsvæði stöðvar 1 en hún sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Er málið til rannsóknar en frá mánaðamótum hafa rétt tæplega fimmtíu tilkynningar um innbrot borist lögreglunni á stöð 1. Innlent 15. júlí 2026 19:31
Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Tvítugur maður var kærður fyrir líkamsárás í gærkvöldi en hann brást illa við þegar tveir ungir drengir gerðu dyraat heima hjá honum í Suðurbæ í Hafnarfirði. Maðurinn hafi „tekið í“ annan drengjanna en hann er ellefu ára. Innlent 15. júlí 2026 11:10
Einn kærður fyrir líkamsárás Einn var kærður fyrir líkamsárás í Hafnarfirði í hverfi 220. Sex eru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina. Innlent 15. júlí 2026 08:57
Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Tímabilskort hækka um rúm þrjú prósent í nýrri gjaldskrá Strætó. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt. Neytendur 14. júlí 2026 08:19
Lesbíur selja litríka íbúð Hjónin Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir og Bára Dís Guðjónsdóttir hafa sett á sölu 133 fermetra íbúð sína að Akurvöllum 1 í Hafnarfirði. Ásett verð er 92,9 milljónir. Lífið 13. júlí 2026 19:01
Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Hafnarfjarðarbær hefur verið sýknaður af kröfum Jóns Rúnars Halldórssonar, fyrrverandi formanns knattspyrnudeildar FH, í Héraðsdómi Reykjaness. Hann hafði farið fram á að bærinn myndi greiða sér 2,5 milljónir króna fyrir að afhenda fjölmiðlum gögn. Innlent 13. júlí 2026 11:36
Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Þrír voru handteknir fyrir líkamsárás og brot á lögreglusamþykkt í miðborg Reykjavíkur í nótt. Mennirnir þrír ýmist losnuðu að skýrslutökunni liðinni eða voru vistaðir í fangageymslu lögreglu sökum ástands. Innlent 11. júlí 2026 07:26
Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Allir níu sakborningarnir í Straumsvíkursmálinu svokallaða hafa verið úrskurðaðir í framlengt gæsluvarðhald. Þeir verða í haldi í fjórar vikur til viðbótar en voru handteknir fyrir tveimur vikum. Innlent 8. júlí 2026 16:18
Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Lögreglan fer í dag fram á framlengt gæsluvarðhald yfir öllum níu sakborningunum í Straumsvíkurmálinu svokallaða, þar sem lögregla rannsakar sögulega umfangsmikinn kókaíninnflutning í súrálskipi. Innlent 8. júlí 2026 12:19
Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Svokölluð sníkjudýrsaðferð hefur verið að ryðja sér til rúms í fíkniefnasmygli á heimsvísu á undanförnum árum. Þá er fíkniefnum komið fyrir á skipum neðansjávar, oft í sjókistu, þannig að áhöfnin veit jafnvel ekki að óhreint mjöl sé í pokahorninu. Innlent 8. júlí 2026 08:00
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent