Innlent

Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“

Agnar Már Másson skrifar
„Þetta er mjög sorglegt og það ríkti mikil gleði og eftirvænting fyrir þessari ferð.“
„Þetta er mjög sorglegt og það ríkti mikil gleði og eftirvænting fyrir þessari ferð.“

Starfsmenn Kraftbíla á Akureyri eru slegnir eftir að vinnufélagi þeirra lét lífið eftir slys í starfsmannaferð upp á hálendi á föstudag. Framkvæmdastjórinn segir aðstandendur í miklu áfalli en að minningu mannsins verði haldið á lofti. Mikil eftirvænting hafði ríkt fyrir starfsmannaferðinni.

Fjölskyldufaðir á fimmtugsaldri lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls. Hann var í tíu manna hópi en um var að ræða jeppaferð á vegum starfsmanna Kraftbíla. Slysið varð þegar hópurinn var að reyna að losa jeppa sem hafði fests í krapa.

„Menn eru náttúrulega mjög slegnir,“ segir Kristján B. Jónsson, framkvæmdastjóri Kraftbíla, í samtali við Vísi. 

„Við erum að átta okkur á þessu. En eins og þessi einstaklingur var, þá var aldrei í stöðunni að gefast upp. Það er bara upp og áfram.“ 

Starfsmaðurinn hafi átt stóra fjölskyldu, konu og börn. „Það er okkar hlutverk að halda utan um þau,“ bætir Kristján við og segir að starfsfólk hyggist halda minningu hins látna á lofti.

Kristján var sjálfur með í för þegar slysið varð. „Maður er aðeins á varatanknum núna,“ segir hann en tekur fram að starfsmenn hafi átt góðan fund með áfallateymi í dag.

„Við tökum einn dag í einu,“ heldur Kristján áfram. „Þetta er mjög sorglegt og það ríkti mikil gleði og eftirvænting fyrir þessari ferð,“ segir hann um starfsmannaferðina.

„Maður er aðeins á varatanknum núna,“ segir hann. En eins og ég segi fyrr ég fyrir að hans hönd var að halda áfram og við gerum það.

Aðspurður svarar hann að verkstæðið verði enn opið á morgun „Kannski ekki í fullum afköstum, það tekur smá stund að ná því aftur, en það er í hans anda: að halda áfram.“

Björgunarsveitarmenn fluttu samferðafólk mannsins til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins veitti því áfallahjálp. Að sögn varðstjóra lögreglu er ekki að vænta frekari upplýsinga um málið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×