Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 18. október 2026 22:02 Marín Jónsdóttir skoðaði hvað ein fyrirspurn til gervigreindar kostar. vísir Það er umhverfisvænna að vera ókurteis við gervigreindina þar sem hver fyrirspurn kostar orku. Gervigreindarsérfræðingur segir óþarfi að bjóða spjallmenni góðan daginn – betra sé að koma sér beint að efninu í fyrirspurnum.
Það er oft sagt að kurteisi kosti ekki neitt, en stundum á þessi fallega fullyrðing ekki alveg við og þannig er það í tilfelli gervigreindar. Þegar fyrirspurn er send með aðstoð gervigreindar í gegnum til dæmis ChatGPT eða Gemini fer ákveðið ferli í gang. Fyrirspurnin er yfirleitt send til gagnavers í Bandaríkjunum þar sem úr henni er unnið, og vinnslan kostar orku. Hvað kostar fyrirspurnin? Marín Jónsdóttir, gervigreindarsérfræðingur og leiðtogi verkefnisins Glóð hjá Almannarómi, skrifaði nýlega grein þar sem hún velti umhverfisþáttum gervigreindar fyrir sér. „Þannig ég fór aðeins að hugsa, hvað kostar ein fyrirspurn? Og það sem ég komst að var að ein fyrirspurn, þetta er rannsókn sem var gerð á Google og Gemini-mállíkaninu sem þau eru með, ein fyrirspurn til Gemini kostar jafn mikið rafmagn og ein sekúnda í örbylgjuofni.“ Sem hljómar ekkert svakalega mikið en Marín segir að setja verði hlutina í samhengi. Raunin sé sú að gervigreind er orðin stór hluti af daglegu lífi margra og telja daglegir notendur um milljarð. „Þannig að þetta er orðið svo umfangsmikið þannig að auðvitað telur hver fyrirspurn.“ Þar sem hver fyrirspurn kostar orku er í raun umhverfisvænna að eyða ekki tíma í óþarfa kurteisi á borð við það að bjóða gervigreindinni góðan daginn eða þakka henni kærlega fyrir veitta aðstoð og vona að hún eigi góðan dag. „Það er kannski óþarfi að byrja að tala við mállíkanið og segja: Hæ, hæ og senda það áfram af því að mállíkan virkar bara ekki þannig. Það er allt í lagi að skrifa bara það sem þig vantar að fá frá mállíkaninu. Það er alveg fín þumalputtaregla.“ Færri flugferðir og minna kjöt Umhverfisspor gervigreindar séu þó ekki mikil í stóra samhenginu. „Ef manni er rosalega annt um umhverfismál þá er líklega áhrifaríkara að fara í færri flugferðir og hætta að borða kjöt.“ Það sé þó munur á textafyrirspurn og fyrirspurn þar sem myndir og myndbönd eru búin til af mállíkani eða ef það er látið senda tölvupósta eða þróa kóða. „Þá erum við náttúrulega að tala um allt annað en einhverja eina sekúndu í örbylgjuofni. Það er einn stór notandi á Claude Code sem segir að hans notkun noti meira rafmagn en tveir ísskápar noti á sólarhring, ef maður reynir að setja þetta í svona eitthvað samhengi. Þannig maður náttúrulega passar líka að gera ekki lítið úr þessari notkun.“
Gervigreind Umhverfismál Loftslagsmál Tækni Tengdar fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, segir áríðandi að fólk missi ekki móðinn í mannréttindabaráttu. Hann segir nauðsynlegt að ná böndum á þau 60 átök sem geisa víða um heim. Einræðisherrar heimsins vilji láta fólki líða eins og það sé hjálparvana og valdalaust en það sé ekki þannig. Hann segir að bregðast verði við bakslagi í mannréttindum og óttast verulega þróun gervigreindar. 17. október 2026 20:01 Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki sé búið að ákveða hvernig fjármagni, sem úthluta á í ný námsgögn, verði varið. Hún opnar á nýtingu gervigreindar við gerð námsgagnanna og segir að framlag stjórnvalda verði hátt í sjö hundruð milljónir þegar uppi verður staðið. 17. október 2026 20:01 Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Gervigreindarrisinn OpenAI hefur sagt upp starfsmanni eftir að grunur kom upp um að hann hafi stundað iðnaðarnjósnir innan fyrirtækisins. Háþróaður hlerunarbúnaður fannst á skrifstofu. 14. október 2026 12:47 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, segir áríðandi að fólk missi ekki móðinn í mannréttindabaráttu. Hann segir nauðsynlegt að ná böndum á þau 60 átök sem geisa víða um heim. Einræðisherrar heimsins vilji láta fólki líða eins og það sé hjálparvana og valdalaust en það sé ekki þannig. Hann segir að bregðast verði við bakslagi í mannréttindum og óttast verulega þróun gervigreindar. 17. október 2026 20:01
Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki sé búið að ákveða hvernig fjármagni, sem úthluta á í ný námsgögn, verði varið. Hún opnar á nýtingu gervigreindar við gerð námsgagnanna og segir að framlag stjórnvalda verði hátt í sjö hundruð milljónir þegar uppi verður staðið. 17. október 2026 20:01
Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Gervigreindarrisinn OpenAI hefur sagt upp starfsmanni eftir að grunur kom upp um að hann hafi stundað iðnaðarnjósnir innan fyrirtækisins. Háþróaður hlerunarbúnaður fannst á skrifstofu. 14. október 2026 12:47