Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Freyja Þórisdóttir skrifar 1. nóvember 2026 12:49 Margir þeirra sem tóku þátt í mótmælunum í gær klæddust búningum enda haldnir hrekkjavökufögnuðir víða. Þessi var til að mynda klæddur upp sem ofurhetjan Batman en í stað þess að vakta dimm húsasund Gotham-borgar stóð þessi vaktina í Frankfurt. AP Efnt var til mótmæla í ríflega þrjátíu borgum Þýskalands um helgina en þau eru skipulögð af ungliðahreyfingu sem mótmælir herskyldu, hækkandi framfærslukostnaði og krefst aukinnar fjárfestingar í menntakerfinu og aðgerða í loftslagsmálum. Mótmælin fóru mestmegnis friðsamlega af stað í gærmorgun en þegar tók að rökkva færðist harka í leikinn.
Þúsundir tóku þátt í að mestu friðsamlegum mótmælum fyrri hluta gærdagsins, laugardagsins 31. október, en þau voru skipulögð af baráttuhópnum Gen Z regelt sem mætti lauslega þýða sem „Z-kynslóðin kemur á reglu“. Friðurinn entist stutt Lögregla lokaði þó stórum hluta helstu verslunargötu Frankfurt en talsmaður lögreglunnar sagði að margir hefðu verið handteknir í borginni eftir að mótmælin hefðu snúist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á, er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) um mótmælaölduna. Þar er haft eftir Linu Friedrich, talskonu Gen Z regelt, að mótmælin væru „til að berjast fyrir friði og frelsi, frekar en fyrir stríði og þvingunum“. Meðal þeirra þrjátíu og fjögurra borga þar sem á annað hundrað mótmæli fóru fram núna um helgina eru Berlín, Frankfurt og Munchen en lögregla beitti vatnsbyssum til að dreifa mótmælendum sem réðust að viðbragðsaðilum með flugeldum, grjóti og flöskum. Brutust inn í verslanir Á laugardagskvöld sagði lögreglan í Frankfurt að „ofbeldisfullar óeirðir“ ættu sér stað í miðborginni og að sérsveitir lögreglu hefðu verið kallaðar út. Rúður í nokkrum verslunum hefðu verið brotnar og bensínsprengjum kastað að viðbragðsaðilum. Sjá einnig: Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Yfirvöld sögðu meðal annars að rúður í byssuverslun hefðu verið brotnar og að lagt hefði verið hald á tvö vopn eftir að grunaður maður var handtekinn. Fólk braust einnig inn í aðrar verslanir og stal íþróttaskóm og öðrum varningi. Það var greint frá því í gær að í höfuðborginni Berlín hefði verið neglt fyrir glugga ýmissa lúxusverslana á verslunargötunni Kurfuerstendamm vegna áhyggna um mögulegar óeirðir. AP Haft er eftir Roman Poseck, innanríkisráðherra sambandslandsins Hessen, þar sem Frankfurt er stærsta borgin, að það væri „skammarlegt“ hvernig mótmælunum hefði lokið. „Við höfum öll myndirnar frá Frakklandi í huga: brennandi hús, brennandi lögreglubíla og árásir á lögreglumenn. Frakkland má ekki vera fyrirmynd í þessum efnum,“ var haft eftir honum í frétt BBC. Lögregla hafi sagt að ástandið í borginni hefði róast undir sunnudagsmorgunn.
Mótmælaalda í Evrópu 2026 Þýskaland Frakkland Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Vara við nálum í hrekkjavökunammi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Fleiri fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Sjá meira