Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fjórar konur og tveir menn voru skotin til bana á heimili fyrir börn og mæður í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. 45 ára karlmaður er í haldi lögreglu grunaður um verknaðinn en hann átti í forræðisdeilu. Erlent 29.6.2026 19:47
Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Byssumaður er sagður hafa skotið fimm manns til bana og sært fleiri við æskulýðsmiðstöð í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. Lögregla segir að tveir séu í haldi, þar á meðal sá sem er grunaður um að hafa skotið fólkið. Erlent 29.6.2026 12:15
41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Hitinn fór upp í 41,5 gráður í Þýskalandi í dag og er það hæsti hiti sem mælst hefur í landinu frá upphafi mælinga. Hitamet var sömuleiðis sett í Danmörku og Tékklandi í dag en hitabylgja gengur nú yfir Evrópu. Erlent 27.6.2026 18:40
Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Erlent 1.6.2026 10:07
„Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Stjórnvöld í Þýskalandi hafa gert breytingar á byggingarreglugerðum þannig að næturklúbbar séu flokkaðir með öðrum hætti en aðrir afþreyingarstaðir fyrir fullorðna. Rekstraraðilar fagna breytingunni en óttast sumir að hún komi of seint. Lífið 31. maí 2026 09:03
Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Öll flugumferð um alþjóðaflugvöllinn í München var stöðvuð í um klukkustund í morgun. Um klukkan níu að staðartíma tilkynntu flugmenn tveggja véla að þeir hefðu mögulega séð dróna á flugi. Flugmennirnir voru þá enn staddir á jörðu niðri. Erlent 30. maí 2026 10:14
Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að bandarískum hermönnum í Evrópu muni fækka. Um það sé skilningur meðal aðildarríkja NATO en framkvæmdastjóri bandalagsins segir að hin ríka Evrópa hafi reitt sig of mikið á Bandaríkin í varnarmálum og að það muni breytast á næstu árum. Erlent 22. maí 2026 14:38
Sátu um tóman banka í sex tíma Umsátri um banka í þýska bænum Sinzig lauk eftir um sex klukkustundir. Þegar lögregluþjónar fóru inn í bankanna fundu þeir eingöngu tvo starfsmenn sem höfðu verið læstir inni í hvelfingu. Ræninginn eða ræningjarnir virðast ekki hafa verið inni í bankanum og eru því taldir ganga lausir. Erlent 8. maí 2026 14:35
Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur nú yfir í bænum Sinzig í Þýskalandi þar sem bankaræningjar hafa tekið fólk í gíslingu. Þungvopnaðir lögregluþjónar sitja um útibú Volksbank í miðbæ Sinzig. Óljóst er hve margir ræningjarnir eru en þeir reyndu að ræna bankann þegar brynvörðum bíl var ekið þangað í morgun. Erlent 8. maí 2026 11:11
Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Minnst einn lést þegar ökumaður keyrði inn í mannfjölda í borginni Leipzig í Þýskalandi síðdegis í dag. Fleiri eru særðir en lögregla segir að ökumaðurinn hafi verið handtekinn og almenningi stafi engin frekari hætta af honum. Erlent 4. maí 2026 16:31
Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Trump, forseti Bandaríkjanna hefur ákveðið að fækka í her Bandaríkjamanna sem staðsettur er í Evrópu. Fyrstu fimm þúsund hermennirnir sem kvaddir eru heim eru staðsettir í Þýskalandi, en fleiri munu fylgja á eftir, þ.á.m. frá Ítalíu og Spáni. Skoðun 4. maí 2026 07:00
Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Utanríkisráðherra telur brotthvarf þúsunda hermanna Bandaríkjanna frá Þýskalandi ekki veikja NATO og ólíklegt að ákvörðunin hafi bein áhrif á Ísland. Það trufli samskipti þjóðarleiðtoga að Bandaríkin hafi farið í stríð við Íran án þess að ráðfæra sig við sína bandamenn. Innlent 3. maí 2026 13:15
Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Írani ekki enn hafa „borgað nægilega hátt verð“ fyrir gjörðir sínar síðustu áratugi. Trump fer nú yfir nýjustu tillöguna um varanlegt vopnahlé við Íran. Hann útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir í Íran þó svo að hlé hafi verið gert á þeim fyrir tæpum mánuði. Erlent 3. maí 2026 08:27
Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Talskona NATO segir sambandið nú vinna að því í samvinnu við Bandaríkin að „skilja smáatriðin“ í ákvörðun Bandaríkjanna um að afturkalla þúsundir hermanna frá Þýskalandi. Erlent 2. maí 2026 14:55
Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt um afturköllun fimm þúsunda hermanna sinna frá Þýskalandi. Samkvæmt ónafngreindum embættismönnum stafar þetta af óánægju Bandaríkjaforseta vegna tregðu Þjóðverja við að taka þátt í árásarstríði sínu við Íran. Erlent 1. maí 2026 22:52
Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld vestanhafs vera að skoða að fækka bandarískum hermönnum í Þýskalandi. Ákvörðunar sé að vænta á næstunni. Þetta kemur fram í færslu sem forsetinn birti á Truth Social seint í gærkvöldi. Erlent 30. apríl 2026 06:35
Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Íran hefur ekki lengur einn stjórnanda sem tekur úrslitaákvarðanir um hvaða stefnu ríkið tekur. Herforingjar og aðrir valdamiklir menn sem tengjast flestir byltingarverði Íran eru nú sagðir taka flestar ákvarðanir sem nýi æðstiklerkurinn veitir svo blessun sína. Erlent 29. apríl 2026 13:45
Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við nemendur í Marsberg í gær að Íranir hefðu leikið á og væru að spila með Bandaríkjamenn. Hann virðist þannig hafa allt aðra sýn á stöðuna en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hélt því fram um helgina að Bandaríkin hefðu öll spil á hendi. Erlent 28. apríl 2026 07:12
Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar. Erlent 8. apríl 2026 15:37
Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Karlmenn í Þýskalandi þurfa nú leyfi frá þýska hernum ef þeir ætla að dvelja erlendis lengur en þrjá mánuði. Breytingarnar tóku gildi í byrjun árs en hafa ekki ratað í kastljós fjölmiðla fyrr en nú. Á meðan herskylda er ekki í gildi líta stjórnvöld þó ávallt svo á að leyfið sé veitt, en herskylda tekur vissulega gildi á ný á næsta ári. Erlent 4. apríl 2026 23:21
Vill að tæp milljón Sýrlendinga yfirgefi Þýskaland Kanslari Þýskalands vill að tæp milljón Sýrlendinga yfirgefi landið á næstu þremur árum. Hann áskilur sér þó rétt til þess að halda hámenntuðu fólki eins og læknum og hjúkrunarfræðingum. Erlent 31. mars 2026 10:16
Hera verður ástkona JFK Íslenska leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun leika Ingu Arvad, danskan blaðamann sem átti í ástarsambandi við JFK, í nýrri þáttaröð um uppgang Kennedy-fjölskyldunnar á síðustu öld og hvernig John F. Kennedy komst úr skugga eldri bróður síns. Bíó og sjónvarp 30. mars 2026 13:04
Tónlistarpar á von á sumarbarni Söngkonan Ásdís María Viðarsdóttir og tónlistarmaðurinn Jökull Logi Arnarsson eiga von á barni. Parið hefur verið saman í þrjú ár og er búsett í Berlín síðustu ár þar sem þau hafa gert það gott í tónlistarbransanum. Lífið 24. mars 2026 10:24
Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran. Erlent 16. mars 2026 15:49
Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran. Það kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga ríkjanna þar sem þeir segja handahófskenndar eldflaugaárásir Írana á nágrannalönd ógna öryggi borgara sinna og bandamanna. Erlent 1. mars 2026 22:31