Erlent

Grunaðir um að skipu­leggja ó­eirðir á Tenerife

Agnar Már Másson skrifar
Þeir eru sagðir hafa ætlað að skipuleggja óeirðir á Milla de Oro, eða „Laugaveginum“ eins og íslenskir ferðamenn kjósa að kalla verslunargötuna.
Þeir eru sagðir hafa ætlað að skipuleggja óeirðir á Milla de Oro, eða „Laugaveginum“ eins og íslenskir ferðamenn kjósa að kalla verslunargötuna. Getty/Miracsaglam

Spænska lögreglan hefur handtekið tvo á eyjunni Tenerife þar sem þeir eru grunaðir um að skipuleggja óeirðir og skemmdarverk sem voru sögð myndu eiga sér stað í Santa Cruz og við amerísku ströndina.

Í yfirlýsingu lögreglu segir að annar hinna handteknu sé sextán ára. Þeir séu grunaðir um að skipuleggja óeirðir á eyjunni í nafni svokallaðra „Blocus“-hópa.

Að sögn lögreglu nýttu þeir sér dulkóðaða spjallhópa og samfélagsmiðla til þess að hvetja til skemmdarverka, rána og árása gegn lögreglumönnum. Þeir hafi verið handteknir í gær, áður en þeir létu til skarar skríða.

Skilaboð sem höfðu farið í dreifingu vöktu ugg meðal íbúa, fyrirtækjaeigenda og yfirvalda, að sögn Canarian Weekly.

Nafnlausir reikningar boðuðu til samkomu á Calle del Castillo í Santa Cruz og Milla de Oro á Amerísku ströndinni, en þá götu hafa Íslendingar sem sækja eyjuna heim iðulega kallað „Laugaveginn“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×