Innlent

Þekkt fyrir­tæki nýtt í skipu­lagðri glæpa­starf­semi

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Einn af þeim sem var leiddur fyrir dómara og úrksurðaður í gæsluvarðhald á sínum tíma.
Einn af þeim sem var leiddur fyrir dómara og úrksurðaður í gæsluvarðhald á sínum tíma. vísir/viktor freyr

Grunur leikur á um að stöndug íslensk fyrirtæki með gott orðspor hafi verið nýtt til peningaþvættis af skipulagðri glæpastarfsemi í umfangsmiklu máli sem lögregla hefur á sínu borði. Nokkur skotvopn voru haldlögð í samstilltum aðgerðum lögreglu þar sem átján manns í heildina hafa verið handteknir.

Þetta herma heimildir fréttastofu. Fram hefur komið að á meðal handteknu í málinu er framkvæmdastjóri hjá bílaumboðinu BL sem var í framhaldinu settur í leyfi frá störfum. Forstjóri BL hefur sagt fyrirtækið aðstoða lögreglu við rannsókn hennar á málinu.

Skotvopn sem lagt var hald á við húsleit voru skráð með réttum hætti.

Þann 22. september réðst lögregla í umfangsmikla aðgerð þar sem að sautján manns voru handteknir og færðir til yfirheyrslu vegna gruns um fíkniefnabrot og peningaþvætti. Þann 9. október var átjándi maðurinn handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komuna frá Portúgal. 

Öllum mönnunum hefur verið sleppt úr haldi og enginn þeirra sætir farbanni vegna málsins. Samkvæmt heimildum eru ekki allir þeir sem voru handteknir vegna málsins enn með stöðu sakbornings. 

Anges Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að nokkur fyrirtæki séu til skoðunar vegna gruns um peningaþvætti en vildi ekki tjá sig frekar um málið á þessu stig. 

Rannsókn lögreglu sé gífurlega viðamikil, fjölmörg gögn séu undir og miðar rannsókninni vel að hennar sögn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×