Úrskurðar- og kærunefndir
1 2 3 … 3 ›
Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Eigandi tveggja hunda sem hann skildi eftir í sóðaskap á heimili sínu á meðan hann var erlendis var sviptur vörslu á þeim varanlega. Kona sem var fengin til þess að huga að hundunum tilkynnti um aðstæður þeirra til yfirvalda. Innlent 16.9.2026 22:00
Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa telur fimm manna hóp ekki eiga rétt á bótum frá ferðaskrifstofu eftir að hótelgistingu þeirra reyndist ábótavant. Hópurinn taldi sig eiga rétt á bótum og sagði hótelíbúðina hafa verið óhreina, ýmis tæki biluð, gat hafi verið á hurðinni og ljósaperur vantaði í mörg ljós. Neytendur 16.9.2026 19:00
Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Eigendur einbýlishúss í Breiðholti verða að breyta húsinu eftir að fimm aukaíbúðir voru innréttaðar þar sem borgin leyfir aðeins eina. Borgin gaf þeim þó of skamman tíma til breytinganna og tók ekki nægilegt tillit til fólksins sem leigir íbúðirnar. Innlent 16.9.2026 15:37
Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Einstaklingur sem leigði íbúð út til heimagistingar þarf að greiða hundrað þúsund krónur í stjórnvaldssekt fyir að skila ekki yfirliti um útleiguna til sýslumanns. Hann sagðist aðeins hafa leigt húsnæðið út í eitt skipti í viku. Innlent 11.9.2026 17:02
Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa féllst á kröfu bílakaupanda um riftun á kaupum á bílnum vegna bilana á bílnum sem komu upp þremur dögum eftir kaup. Kaupandi krafðist fullrar endurgreiðslu kaupverðs og alls útlagðs kostnaðar vegna viðgerða auk riftunar kaupanna. Seljandi taldi sig ekki ábyrgan fyrir bilunum sem fram komu eftir kaupin. Neytendur 22.8.2026 10:21
Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Kærunefnd vöru og þjónustukaupa vísaði í sumar frá máli foreldris sem fór með barnið í ADHD-greiningu en fékk hana ekki vegna vímuefnaneyslu barnsins. Barnið fékk þannig ekki greininguna og foreldrið þess ekki endurgreiðslu. Nefndin taldi málið utan valdssviðs síns. Innlent 18.8.2026 06:45
Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Mannanafnanefnd hefur samþykkt tólf ný mannanöfn, sjö karlkyns, fjögur kvenkyns og eitt kynhlutlaust nafn. Tvö nafnanna flæktust aðeins fyrir nefndinni. Innlent 14.8.2026 14:25
Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Íslenskum ríkisborgara í Danmörku var synjað um að vera tekinn á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst. Hann taldi að brotið hefði verið á stjórnarskrárvörðum kosningarétti sínum. Innlent 6.8.2026 11:11
Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu á gjaldskyldum bílastæðum. Fyrirtækin verða beitt stjórnvaldssektum að upphæð tvö til fjögur hundruð þúsund krónum. Viðskipti innlent 3.7.2026 16:42
„Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Neytendastofa telur að Byko hafi brotið lög með villandi framsetningu á verðlaunaleik sem fyrirtækið kallaði „lukkuhjól“. Neytendur hafi mátt hafa réttmætar væntingar um mun meiri sigurlíkur en raunin var. Viðskipti innlent 29.6.2026 15:25
Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Kærunefnd jafnréttismála hefur hafnað máli konu sem taldi sér hafa verið mismunað á Hard Rock á Lækjargötu eftir að hún óskaði eftir þjónustu á íslensku. Innlent 29.6.2026 14:46
Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Söluaðila hefur verið gert að afhenda viðskiptavini nýjan eyrnahreinsi sem búinn er myndavél, eftir að ekki tókst að hlaða hreinsinn sex dögum eftir kaupin og hann metinn ónothæfur. Neytendur 27.6.2026 22:16
Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Starfsmannaleigu hefur verið gert að endurgreiða starfsmanni sínum 15 þúsund krónur sem dregnar voru af launum hans vegna meints brots á húsreglum, en starfsmaðurinn leigði herbergi af starfsmannaleigunni. Þá var starfsmannaleigunni einnig gert að endurgreiða starfsmanninum ofgreidda leigu. Viðskipti innlent 8.6.2026 12:42
Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael Nú má heita Sifjar og Mollý, samkvæmt nýjum úrskurðum mannanafnanefndar, en ekki Mikhael eða Danivaan. Innlent 1.6.2026 15:09
Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Úrskurðarnefnd kosningamála barst kæra vegna sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík daginn eftir þær þar sem þess var krafist að kosningarnar í heild yrðu úrskurðaðar ógildar, vegna þess að Ríkisútvarpið sýndi kjörseðil í beinni útsendingu á kosninganótt. Nefndin féllst ekki á þá kröfu. Innlent 26.5.2026 14:55
Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála féllst ekki á kröfu eigenda hunds um að ógilda ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um að aflífa skuli hund þeirra eftir að hann særði annan hund alvarlega. Innlent 25.5.2026 23:14
Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Íslendingur sem skellti sér á tónleika Oasis í Manchester í pakkaferð Icelandair á ekki rétt á endurgreiðslu þrátt fyrir að afhending á tónleikamiðanum hafi farið fram síðar en boðað hafði verið. Flugfélagið bauð tónleikagestinum inneign í sárabætur en því boði var ekki svarað. Neytendur 24.5.2026 10:02
Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Kærunefnd húsamála hefur gert leigusala, sem vildi ráðstafa tryggingafé til viðgerðar á parketi vegna skemmda eftir pinnahæla, að endurgreiða fyrrverandi leigjendum sínum tæpan helming tryggingarinnar með vöxtum. Innlent 8.5.2026 08:03
Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Kærunefnd húsamála hafnaði nýlega kröfu leigjanda um að fyrrverandi leigusali hans myndi endurgreiða honum leigu og um að hann myndi greiða honum bætur vegna muna í hans eigu sem leigusalinn fargaði. Leigusalinn fékk ítrekaðar kvartanir vegna leigjandans, meðal annars vegna hegðunar og umgengni í sameiginlegu rými. Þar á hann til dæmis að hafa gengið um nakinn. Innlent 7.5.2026 13:41
Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Mannanafnanefnd hefur undanfarið meðal annarra lagt blessun sína yfir eiginnöfnin Jósmundur, Ván, Cameron og Bix en hafnað beiðnum um eiginnöfnin Viborg eða Norðquist. Innlent 7.5.2026 10:34
Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Kröfu fulltrúa Sporthallarinnar um að útboð Vestmannaeyjabæjar um líkamsræktarstöð yrði stöðvað tímabundið var hafnað vegna þess að bærinn samdi við World Class áður en kærunefnd komst að niðurstöðu. Nefndin hefur kæru vegna útboðsins enn til skoðunar. Viðskipti innlent 21.4.2026 13:16
Kennarasambandið mismunaði konu Kennarasamband Íslands mismunaði starfsmanni á grundvelli kyns þegar stjórn sambandsins neitaði að leiðrétta laun konu í samræmi við laun karls sem vann við svipað starf hjá aðildarfélagi Kennarasambandsins. Innlent 16.4.2026 21:55
Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Úrskurðarnefnd kosningamála segir kosningalög alveg skýr um framboðsfrest og ekki sé gert ráð fyrir því í lögum að tekin sé til greina tilkynning um framboð sem berst utan frests þótt framboð hafi misskilið reglur um tilkynningu framboða. Innlent 14.4.2026 15:20
Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Úrskurðarnefnd mannanafnanefndar samþykkti í vetur fjölda beiðna vegna nýrra nafna en hafnaði einnig beiðnum á borð við þá sem tónlistar- og myndlistamaðurinn Curver Thoroddsen sendi henni. Nefndin birti úrskurð í mars þar sem fram kom að eiginnafninu Curver yrði ekki bætt við mannanafnaskrá sökum þess að stafurinn „C“ finnist hvergi í íslenska stafrófinu. Innlent 25.3.2026 23:02
Staðfesta ákvörðun um bann við fullyrðingum um bestu pakkaferðirnar Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur nú staðfest hluta ákvörðunar Neytendastofu gagnvart Travelshift, rekstraraðila Guide to Europe, frá árinu 2024 vegna fullyrðinga og upplýsinga í samningi um pakkaferðir og verðframsetningar á vefsíðunni guidetoeurope.is. Neytendur 25.3.2026 15:07
Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Netmiðlinum Fréttin.is hefur verið gert skylt að birta andsvör Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur, bæjarfulltrúa í Kópavogi, eftir birtingu aðsendrar greinar upp úr athugasemd Sigurbjargar. Hún sendi inn kvörtun þar sem að rangt hefði verið haft eftir henni. Innlent 9.3.2026 17:29
Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Fertugur breskur karlmaður af kínverskum uppruna fær ekki að koma aftur til Íslands næstu tvö árin eftir að hafa starfað hér á landi sem leiðsögumaður án leyfis. Maðurinn var gripinn við eftirlit lögreglu og reyndust svör hans við spurningum lögreglu loðin í meira lagi. Innlent 4.3.2026 10:59
Háskólinn lagði stúdenta Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema hefur hafnað kröfu fyrrverandi nemanda um endurgreiðslu skráningargjalda, á þeim grundvelli að þau væru byggð á sandi. Innlent 26.2.2026 11:09
Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Fyrirtæki sem seldi konu gleraugu með glerjum sem hentuðu henni ekki þarf að endurgreiða henni glerin eftir að kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kvað upp úrskurð um kvörtun konunnar. Deilt var um hvort að sjónmæling sem gerð var á konunni hafi verið nákvæm. Neytendur 20.2.2026 08:56
Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps var ekki heimilt að taka ákvörðun um að banna íbúa að halda hund. Íbúinn hafði fengið áminningu vegna brota á samþykkt um hundahald. Kæru hans til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála var vísað frá vegna þess að sveitarstjórn hefði átt að taka ákvörðun um að svipta manninn leyfi til hundahalds. Innlent 29.1.2026 06:30