Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Kjartan Kjartansson skrifar 11. september 2026 17:02 Atvinnuvegaráðnueytið staðfesti ákvörðun sýslumanns um stjórnvaldssekt á mann sem skilaði ekki yfirliti um heimagistingu. Vísir/Vilhelm Einstaklingur sem leigði íbúð út til heimagistingar þarf að greiða hundrað þúsund krónur í stjórnvaldssekt fyir að skila ekki yfirliti um útleiguna til sýslumanns. Hann sagðist aðeins hafa leigt húsnæðið út í eitt skipti í viku.
Sýslumaður samþykkti skráningu heimagistingar á vegum mannsins í september árið 2022. Tveimur árum síðar gekk embættið eftir því að hann skilaði yfirliti yfir þá daga sem húsnæðið var leigt út og leigutekjurnar árið 2022. Þar var maðurinn varaður við því að hann gæti átt yfir höfði sér sekt brygðist hann ekki við. Rúmu hálfu ári síðar, í apríl 2025, tilkynnti sýslumaður honum um fyrirhugaða stjórnvaldssekt upp á hundrað þúsund krónur. Skilaði maðurinn yfirlitinu inn innan hálfs mánaðar gæti hann þó lækkað hana í fimmtíu þúsund krónur. Maðurinn brást ekki við fyrr en eftir að sýslumaður tilkynnti honum í júní í fyrra um að embættið hefði ákveðið að leggja á hann hundrað þúsund króna stjórnvaldssekt. Sagðist ekki tala reiprennandi íslensku Hann kærði ákvörðunina til atvinnuvegaráðuneytisins innan við viku eftir að honum barst tilkynningin um sektina. Leyfið hefði hann sótt um til þess að leigja húsnæði út í viku í lok september 2022. Það hefði verið eina skiptið sem hann leigði það út. Bar hann meðal annars við misskilningi vegna þess að hann talaði ekki reiprennandi íslensku. Hann hefði einnig gert ráð fyrir því að kerfi sýslumanns fylgdist sjálfkrafa með upplýsingum um leyfisnúmer hans til heimagistingar. Atvinnuvegaráðuneytið hafnaði kæru mannsins og staðfesti sektina með úrskurði í síðustu viku, fjórum árum eftir að maðurinn fékk leyfið til heimagistingarinnar. Ráðuneytið benti á að sýslumaður hefði gætt meðalhófs og sent manninum ítrekað viðvaranir um að hann gæti þurft að greiða sekt ef hann skilaði ekki inn yfirlitinu. Engin andmæli eða athugasemdir hefðu þrátt fyrir það borist sýslumanni.
Stjórnsýsla Ferðaþjónusta Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira