Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Birgir Olgeirsson skrifar 16. september 2026 15:37 Málið um óleyfilega fjölgun íbúða að Depluhólum 7 var tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur í dag. Vilhelm Eigendur einbýlishúss í Breiðholti verða að breyta húsinu eftir að fimm aukaíbúðir voru innréttaðar þar sem borgin leyfir aðeins eina. Borgin gaf þeim þó of skamman tíma til breytinganna og tók ekki nægilegt tillit til fólksins sem leigir íbúðirnar.
Málið varðar Depluhóla 7. Samkvæmt gögnum málsins voru fjórar íbúðir innréttaðar í kjallara, þar sem áður var ein, og sú fimmta í bílskúr. Borgin hafnaði því í desember að veita leyfi fyrir breytingunum. Eigendur leituðu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sem sker úr deilum um ákvarðanir á borð við þessa. Niðurstaða hennar var kynnt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í dag. Fólk býr í íbúðunum Borgin hafði gefið eigendunum sextíu daga til breytinganna. Þeir sögðu það óraunhæft, meðal annars vegna þess að fólk væri með leigusamninga og þyrfti tíma til að flytja. Nefndin tók undir að fresturinn væri of stuttur. Taka hefði þurft tillit til umfangs framkvæmdanna og þess tíma sem leigjendur eiga rétt á áður en þeir þurfa að yfirgefa húsnæðið. Sextíu daga fresturinn var því felldur niður en eigendurnir þurfa áfram að gera breytingar á húsinu. Geta reynt að fá kjallarann samþykktan Nefndin bendir þeim jafnframt á að þeir geti sótt aftur um leyfi fyrir kjallararými sem hefur verið grafið út. Þá þurfi meðal annars að fækka íbúðum svo fjöldi þeirra verði innan þess sem borgin leyfir. Engin niðurstaða liggur fyrir um hvort slík umsókn yrði samþykkt.
Reykjavík Skipulagsmál Úrskurðar- og kærunefndir Leigumarkaður Húsnæðismál Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira