„Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Smári Jökull Jónsson skrifar 26. október 2026 08:22 Inga Sæland er barna- og menntamálaráðherra. Vísir/Einar Meðlimir skólamálanefndar Skólastjórafélags Íslands segja að nemendur í útskriftarárgangi næsta vors í grunnskólum landsins hafi verið gerðir að tilraunahópi fyrir illa ígrundaðar breytingar á einkunnakerfi grunnskóla. Þá fagnar hópurinn því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hafi hafið frumkvæðisathugun á innleiðingu nýs einkunnakerfis.
Þetta kemur fram í skoðanagrein sem birtist á Vísi en undir hana rita Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri Borgarhólsskóla á Húsavík, Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla, Kristín Jóhannesdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar, Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri Öldutúnsskóla, Snædís Valsdóttir, skólastjóri Vogaskóla, og Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla. Í greininni skrifa þau að skólafólk, foreldrar og samfélag standi nú frammi fyrir stórum spurningum um stjórnsýslu menntamála og fagna ákvörðun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis sem ákveðið hefur að hefja frumkvæðisathugun á ákvörðun og innleiðingu mennta- og barnamálaráðherra á breyttu námsmatskerfi úr bókstöfum yfir í tölustafi fyrir nemendur í 10. bekk vorið 2027. „Okkur undirrituðum finnst traustvekjandi að Alþingi vilji skoða feril málsins og við viljum árétta að ekki er heppilegt að kasta til hendinni við breytingar á afmörkuðum þáttum námsskrár.“ Þriggja ára aðlögun vegna sambærilegra breytinga í Svíþjóð Þá fara höfundar yfir vinnu við endurskoðaða Aðalnámskrá grunnskóla sem þau segja hafa hafist í upphafi árs 2026 eftir að endurskoðun á greinasviði aðalnámskrár lauk í október 2024. Kemur fram að sérfræðingar, stjórnendur og kennarar hafi setið vikulega fundi í margar vikur til að stilla saman strengi og byggja upp sameiginlegan skilning. Í lok síðasta skólaárs hafi skólar verið tilbúnir að taka verkefnið fastari tökum og komnir með drög að kennsluáætlunum og skólanámskrá fyrir yfirstandandi skólaár. „Sumarið 2026 var þeirri vinnu hins vegar kollvarpað með fyrirvaralausri ákvörðun ráðherra sem fékk óljósa kynningu vorið 2026 og ekki tilkynnt fyrr en 7. ágúst: nemendur í 10. bekk skyldu útskrifast vorið 2027 með einkunnir á talnakvarðanum 4-10 í stað bókstafa,“ segir í greininni. Jafnframt skrifar hópurinn að innleiðingartími breytinganna sé vonandi einsdæmi. „Þess má geta að í Svíþjóð var fyrir nokkru tekin ákvörðun um að skipta úr bókstafakvarða yfir í talnakvarða og menntayfirvöld þar tóku ákvörðun um að gefa sér tæp þrjú ár til að aðlaga sína aðalnámskrá að breytingunum; talnakvarðinn tekur gildi í Svíþjóð haustið 2028.“ Vegferð ráðherra minni á keisarann klæðalausa Þá segja greinarhöfundar að aðalnámskrá eigi ekki að breyta með flýtiaðgerð og fara síðan yfir talnakvarðann sem taka eigi upp, sem gæti reynst ágætlega, allir matskvarðar hafi sína kosti og galla. Segja þau að samkvæmt drögum merki einkunnin 7 að hæfniviðmiðum sé náð en einkunnirnar 8-10 eigi að mæla stigvaxandi meiri dýpt, öryggi og umframhæfni. „Umsagnir í samráðsgátt og reynsla skólafólks af vikulegum fundum með MMS á haustönn 2026 sýna að fyrirhugaðar breytingar standa tæpt þrátt fyrir góðan vilja starfsmanna ráðuneytis og MMS. Í stað þess að einfalda námsmat hefur skapast fyrirsjáanleg og óhjákvæmileg óvissa um útfærslu,“ segir í greininni og bæta þau við að illa ígrundaðar breytingar geri minna en ekkert gagn. Vegferð ráðherra minnir á ævintýrið um keisarann klæðalausa. „Útskriftarárgangur vorsins 2027 hefur verið gerður að tilraunahópi fyrir nemendur fyrir illa ígrundaðar breytingar en vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann í göngunni.“ Hópurinn segir að ráðherra hafi sýnt að hún láti verkin tala sem þeim þyki gott og aðdáunarvert. Þau hafi fulla trúa á góðum vilja hennar til að bæta hlutina. Hins vegar þurfi að vanda til verka. „Ef skólastjórar og fagfólk í skólunum telja að fyrirhugaðar breytingar standist ekki lagalegar kröfur, valdi réttaróvissu og brjóti á hagsmunum nemenda, ber þeim fagleg skylda til að stíga niður fæti og gera athugasemdir.“
Skóla- og menntamál Grunnskólar Framhaldsskólar Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Sjá meira