Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. október 2026 21:17 Jón Gnarr var frásagnarglaðari í þessu viðtali en hann hefur verið til þessa. Vísir/Anton Brink Jón Gnarr útilokar ekki að endurmeta stuðning sinn við ríkisstjórnina komi upp sú staða að honum finnist sér ekki lengur stætt á honum. Hann segir Viðreisn í krísu og að þverpólitískur starfshópur sem hann stóð að hafi ekki verið fundarfær vegna mætingar.
Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar fyrr í mánuðinum en er áfram meðlimur í flokknum. Hann gerði skriflegt samkomulag við þingflokkinn um að styðja ríkisstjórnina, fjárlög og stefnumótandi mál hennar og halda áfram nefndarstörfum sínum. Í löngu viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu segir Jón að hann ætli að standa við þá ákvörðun, en stuðningurinn sé þó ekki skilyrðislaus til frambúðar. Hann segist ætla að standa við ábyrgð sína og styðja ríkisstjórnina en bætir við að ef svo færi að honum fyndist sér „ekki stætt á því lengur“ eða að málin væru komin „út í óhug sinn“ þyrfti hann að breyta afstöðu sinni. „Ég útiloka það ekkert.“ Óheilbrigð tengsl aðstoðarmanns og þingflokksformanns María Rut Kristinsdóttir gegndi tímabundið starfi þingflokksformanns eftir að Sigmar Guðmundsson fór í veikindaleyfi í september. Hún er eiginkona Ingileifar Friðriksdóttur, aðstoðarmanns Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns. Pawel Bartoszek tók síðan við formennsku þingflokksins 13. október og María Rut var kjörin varaformaður. Jón segir að honum hafi þótt þetta fyrirkomulag óeðlilegt. „Mér fannst til dæmis óeðlilegt, og ég ræddi það við þau öll, eða þær allar, að sitjandi þingflokksformaður væri eiginkona aðstoðarmanns formanns. Mér fannst það ekki heilbrigt,“ segir Jón. Hann segir að ekki hafi verið hlustað á þá athugasemd. Aðspurður hver bæri ábyrgð á því sem hann kallar ákvarðanafælni innan flokksins nefnir Jón fyrst og fremst formanninn, en einnig stjórn flokksins, varaformann og þáverandi starfandi þingflokksformann. Hann lýsir því einnig nánar sem hann kallar klíkuskap sem hafi meðal annars birst í því að ákvarðanir hafi verið teknar áður en þingflokksfundir hófust og síðan tilkynntar öðrum sem orðinn hlutur. „Já, já, sem bara tók einhverja ákvörðun og svo var bara búið að taka hana þegar það var tilkynnt um hana,“ segir hann. Þverpólitískur starfshópur hafi verið „dúsa“ Jón lýsir einnig fundi sínum með Þorgerði Katrínu í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þar hafi hann gert henni grein fyrir óánægju sinni með stöðuna og meðal annars viðrað áhyggjur sínar af að málefni barna í erfiðri stöðu fengju, að hans mati, ekki þann stuðning innan flokksins sem hann hefði átt von á. Þorgerður hafi þá lagt til að Jón leiddi starfshóp sem færi yfir stöðuna innan flokksins og kæmi með tillögur að úrbótum. Jón segist hafa tekið verkefnið að sér með því skilyrði að hann hefði stuðning og traust formanns og stjórnar flokksins. Þegar vinnan hófst og hann fór að ræða við fólk hafi honum hins vegar orðið ljóst að vandinn væri „talsvert miklu alvarlegri“ en hann hafði gert sér grein fyrir. Jón segist síðar hafa sagt formanni og varaformanni að hann teldi ástandið orðið að „neyðarástandi“ sem þyrfti að bregðast hratt við. Samskiptavandinn hafi verið orðinn slíkur að „klíkumyndun“ og „sellur“ hafi farið langt um fram það sem eðlilegt á að teljast í stjórnmálum. „Og það gerðist síðan ekkert,“ segir hann. Hann hafi ítrekað beðið eftir því að Þorgerður hefði samband til að spyrja hvernig vinnunni miðaði, en það símtal hafi aldrei komið. „Svo bara einhvern veginn varð það mín skoðun og mín upplifun sú að þetta hefði nú bara verið ákveðin dúsa,“ segir Jón. Hann segist jafnframt hafa fundið fyrir tortryggni gagnvart sér og því hvað honum gengi til með vinnunni. Starfshópur stundum ekki fundarfær vegna mætingar Jón segir vonbrigði sín með áherslu flokksins á málefni barna hafa vegið þungt í ákvörðun sinni. Hann hafði ásamt Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þáverandi ráðherra barnamála, frumkvæði að þverpólitískum starfshópi um úrbætur fyrir börn í vanda. Jón segir hins vegar að illa hafi gengið að halda vinnunni gangandi. „Það gekk illa að finna tíma fyrir hópinn til að hittast og fólk mætti illa. Það var stundum ekki fundarfært bara af því að það mætti enginn,“ segir Jón. Skipulagsbreytingar og ráðherraskipti hafi auk þess orðið til þess að starfsfólk ráðuneytisins hafði takmarkaðri möguleika á að sinna verkefninu. Starfstími hópsins rann síðan út í sumar. „Viðreisn er bara í smá krísu“ Jón segist enn telja sig eiga pólitíska samleið með Viðreisn en að flokkurinn hafi að hans mati „eitthvað villst af leið“. Aðspurður hvað þyrfti að breytast til þess að hann gæti snúið aftur í þingflokkinn segir hann að mögulega væri hægt að vinna sig út úr vandanum með uppgjöri og heilbrigðu samtali. „Ég held að það hljóti allir að sjá að stjórnmálaflokkurinn Viðreisn er bara í smá krísu.“ Hann telur vandann fjölþættan. „Skipulagsleysi, áföll, veikindi, uppsafnaður samskiptavandi og pólitískar deilur,“ segir hann inntur eftir nánari lýsingu. Þorgerður Katrín hefur áður sagt að hún ætli ekki að standa í opinberum orðaskiptum við Jón vegna gagnrýni hans. Eftir brotthvarf hans sagði hún jafnframt að hún bæri mikla virðingu fyrir honum og lagði áherslu á að hann hefði gert samkomulag um áframhaldandi stuðning við ríkisstjórnina.
Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar Viðreisn Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira