Innlent

Djúp lægð úr suðri fer að hafa á­hrif í kvöld

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Víða verður súld eða þokuloft.
Víða verður súld eða þokuloft. Vísir/Anton Brink

Djúp lægð úr suðri nálgast landið næsta sólarhringinn og fer að hafa áhrif á landsmenn í kvöld með vaxandi norðaustanátt og vætu. Á morgun verður strekkings eða allvöss norðaustanátt á landinu með rigningu, einkum fyrir norðan og austan, fer heldur hlýnandi.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Þar segir að lægðardrag sem liggur yfir landinu valdi rigningu eða slyddu um norðanvert landið í dag. Syðra verður að mestu skýjað en þurrt.

Það dregur smám saman úr úrkomu í dag en verður þó víða súld eða þokuloft norðaustantil síðdegis. Hiti 0 til 7 stig. Norðaustan 3-8 í kvöld, dálítil rigning eða súld fyrir austan og á Vestfjörðum, en annars þurrt.

Norðaustanátt, víða 10-18 á morgun, hvassast á Vestfjörðum og einnig austan Öræfa um tíma í fyrramálið. Talsverð rigning norðan- og austanlands, en úrkomuminna syðra. Hiti 4 til 10 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:

Norðlæg átt, 5-13 m/s, en 13-18 á Vestfjörðum og austast. Rigning eða súld, einkum norðan- og austanlands, en styttir víða upp sunnanlands síðdegis. Hiti 4 til 9 stig.



Á miðvikudag:


Vestan 8-15 austanlands, en heldur hægari seinnipartinn. Annars hægari breytileg átt. Rigning eða slydda nyrst, en styttir upp seinnipartinn. Annars úrkomulítið og bjart suðaustanlands. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast suðaustanlands.

Á fimmtudag:

Suðaustan 13-20 m/s með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands, en hægari og úrkomulítið norðaustantil. Heldur hægari sunnanátt og skúrir vestantil um kvöldið. Hiti 7 til 12 stig.

Á föstudag:

Suðlæg átt, 8-15 m/s og skúrir, en bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti 4 til 8 stig.

Á laugardag:

Sunnan og suðvestanátt. Skúrir eða slydduél, en bjart norðan- og austanlands. Hiti 1 til 6 stig.

Á sunnudag:

Útlit fyrir sunnanátt með vætu, en úrkomulítið norðaustantil. Heldur hlýnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×