Innlent

Um­ferð gæti tafist á Arnar­nes­vegi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Umferðartafir gætu orðið á Arnarnesvegi í dag.
Umferðartafir gætu orðið á Arnarnesvegi í dag. Vísir/Vilhelm

Búast má við töfum á umferð á Arnarnesvegi frá klukkan tíu til fjögur í dag, vegna malbiksviðgerða sem þar munu standa yfir. 

Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni verður byrjað á framkvæmdum við hringtorg við Vetrarbraut og síðar við Fífuhvammsveg. Vinnusvæðin eru þröng og menn og við vinnu á tækjum sínum mjög nálægt akstursbrautum.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Þá er einnig stefnt að malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi við Rauðavatn og verður vegurinn lokaður á milli hringtorga við Breðholtsbraut og Norðlingavað en hjáleið um Norðlingabraut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×