Garðabær

Garðabær

Mannfjöldi: 20.116 (2025). Flatarmál: 46 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Allt frítt í Garða­bæ, eða á­byrgur rekstur ?

Í aðdraganda kosninga hafa Garðbæingar heyrt mörg loforð um aukin fríðindi, lækkun gjalda og ný kostnaðarsöm verkefni. Talað er um, fleiri gjaldfrjálsar stundir í leikskólum, hækkun Hvatapeninga og ýmsar aðrar aðgerðir sem allar kosta verulega fjármuni.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum

Átak Reiðhjólabænda, Gul hjól, hófst í gær og stendur út mánuðinn. Átakið snýr að vitundarvakningu bílstjóra um öryggi gangandi og hjólandi í umferðinni. Hjólum er stillt upp þar sem óhöpp eða slys hafa átt sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Um­ferðar­mál í Urriðaholti – Flótti frá vandanum

Með fjölgun íbúa í Urriðaholti og uppbyggingu þjónustu í Kauptúni hefur álag á inn- og útkeyrsluleiðina í hverfið aukist gríðarlega og annar enganveginn umferðinni. Unnið er að opnun út á Flóttamannaveg sem mun vonandi eitthvað létta á álaginu á núverandi innkeyrslu inní hverfið. Ég óttast því miður að það verði óverulegt og þessi tenging verði fyrst og fremst flóttaleið og gagnsemin felist í að hafa fleiri en eina leið í hverfinu ef meginleiðin lokast.

Skoðun
Fréttamynd

Grinda­vík og Hvera­gerði talin í mestri hættu vegna eld­gosa

Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi.

Innlent
Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Mun Sjálf­stæðis­flokkurinn halda velli í Garða­bæ?

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og eins og stendur eru þrjár vikur þangað til landsmenn ganga til kosninga. Við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina og því munu oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garðabæ koma saman í kosningapallborði fréttastofu til að ræða þau helstu málefni sem eru undir í kosningunum.

Innlent
Fréttamynd

Ari Edwald selur í Garða­bænum

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur sett íbúð sína að Þorraholti í Garðabæ á sölu. Ari festi kaup á íbúðinni síðasta sumar en ákvað svo að bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosningunum Reykjavík og er því væntanlega í leit að fasteign í höfuðstaðnum. Hann óskar eftir tilboði í íbúðina.

Lífið
Fréttamynd

Sögu­frægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru

Íbúar í Garðabæ hafa margir hverjir lýst yfir áhyggjum af niðurníðslu húsa á Vífilsstöðum, sem að margra mati voru virðuleg hér áður fyrr. Börn og ungmenni hafa gert það að vana sínum að brjótast inn í húsin en Garðabær og talsmenn Landspítalans segjast kappkosta að tryggja öryggi á svæðinu. Áform eru um að gera húsin upp í sinni upprunalegu mynd í samráði við Minjastofnun.

Innlent
Fréttamynd

Þörf eftir sér­tæku hús­næði fyrir yngri en 25 muni „fara veru­lega vaxandi“

Nokkuð löng bið getur verið eftir plássi í skammtímadvöl í Kópavogi og eftir sértæku húsnæði. Tuttugu börn biðu í lok mars eftir dvöl í skammtímadvöl, elsta umsóknin er frá því í ágúst 2021. Þá bíða 28 eftir sértæku húsnæði. Meðalaldur umsækjenda er 39 ár og segir í samantekt velferðarsviðs bæjarins að þörfin muni fara verulega vaxandi hjá þeim sem yngri eru en 25 ára. 

Innlent
Fréttamynd

Álfta­nes – ný byggð á flóðasvæði

Garðabær hefur í tveimur áföngum frá 2019 kynnt skipulag á Álftanesi á svokölluðu Norðurnesi, gegnt Bessastöðum. Meginatriði þessa skipulags er annars vegar nýr golfvöllur og hins vegar ný íbúðabyggð með sérbýli.

Skoðun
Fréttamynd

„Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“

„Ég hef alltaf þurft að takast á við fordóma gagnvart húðlitnum mínum. Oftast öráreitni, en líka rasískar hótanir á netinu og í persónu. Þetta hafði gríðarleg áhrif á líf mitt, sjálfstraustið mitt og vellíðan. Ég vissi samt snemma að eina leiðin sem ég get barist gegn kynþáttafordóma er að nota mína rödd og gera eitthvað gott úr því,“ segir Klara Wanjiru Sindradóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026.

Lífið
Fréttamynd

Ó­sætti vegna dymbil­viku­lokana í leik­skólum Garða­bæjar

Foreldrar leikskólabarna í Garðabæ setja út á lokanir í dymbilvikunni. Útfærsla Reykjavíkurborgar sé hentugri en þar geti foreldrar valið hvort þeir nýti leikskólapláss eða ekki. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir breytingarnar hafa verið til þess að minnka álag á leikskólastarfsmenn.

Innlent
Fréttamynd

Voru send í skólasund eftir slysið

Neyðarlínan segist ekki hafa fengið fullnægjandi upplýsingar þegar bíll gjöreyðilagðist eftir aftanákeyrslu á hópferðabíl fullum af börnum fyrir tæpum tveimur vikum. Sjúkrabíll hefði verið sendur samstundis á vettvang hefðu þær borist. 

Innlent
Fréttamynd

Ó­sátt með á­byrgðar­leysi eftir að börn lentu í bíl­slysi á skóla­tíma

Foreldrar barna í Urriðaholtsskóla saka skólann og Garðabæ um ábyrgðarleysi eftir að börnin þeirra lentu í árekstri á leið í skólasund. Börnin voru send fótgangandi í sund og þegar eitt foreldrið bað um að haldinn yrði foreldrafundur sagði skólastjórinn ekki telja ástæðu til. Þau ætla að biðja um fund með Garðabæ til að fá lausn í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Ekki er allt sem sýnist í rekstri Garða­bæjar

Í yfirlýsingum bæjaryfirvalda í Garðabæ er rætt um sterkan rekstur og trausta afkomu. Þegar fjárhagsáætlunin er skoðuð nánar kemur annað í ljós. Tekjumódelið byggir of mikið á sölu lóða til að fegra myndina, og ef byggingamarkaðurinn kólnar, eins og fleiri og fleiri vísbendingar gefa til kynna, mun það bitna á þjónustu bæjarins, sem íbúar reiða sig á.

Skoðun
Fréttamynd

Fjölga plássum og breyta nafni eins leik­skóla

Fjölga á leikskólaplássum á Hjallastefnuleikskóla í Garðabæ um 30 á næsta ári. Garðabær og Hjallastefnan hafa undirritað samkomulag um áherslur uppbyggingar skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. 

Innlent
Fréttamynd

Ekið á skólarútu

Eitthvað var um meiðsli að sögn lögreglu eftir að ekið var á skólarútu í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ.

Innlent