Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Lovísa Arnardóttir skrifar 21. október 2026 09:18 Unnur Lilja leitaði sér aðstoðar hjá Stígamótum eftir atvikið. Bylgjan Unnur Lilja Andrésdóttir hélt að hún myndi deyja í útskriftarferð sinni með FG til Portúgal fyrir tveimur árum og vill vekja athygli á því að ýmislegt geti komið upp í slíkum ferðum. Fimm menn réðust að henni á skemmtistað eitt kvöldið. Hún segir einnig mikilvægt að fólk fái rými og frelsi til að segja frá.
Unnur Lilja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni um þessa árás. Hún segir algengt að það komi upp einhver atvik í fjölmennum útskriftarferðum og að fólk sé reglulega varað við því. „Ég varð viðskila við hópinn og kenndi mér sjálfri mjög mikið um það,“ segir hún og að hún viti betur í dag. Það geti alltaf gerst. „Þá voru það fimm ungir menn sem umkringdu mig,“ segir hún og að þeir hafi líklega verið yfir tvítugt en á þessum tíma var hún átján ára. Unnur Lilja telur einnig að þeir hafi verið erlendir ferðamenn og að þeir hafi talað ensku. „Þeir komu aftan að mér, tóku mig hálstaki og voru með hníf á sér, notuðu hann til að ógna,“ segir hún og að hún hafi ekki náð andanum. Var á leið af salerninu á skemmtistað Hún segir þessa fjóra alla hafa verið að taka árásina upp en hún átti sér stað á skemmtistað í horni hans. Hún segist hafa verið að fara af salerninu þegar hún mætti þessum mönnum og þeir króuðu hana af úti í horni. Hún er sjálf 166 sentímetrar á hæð og segir þessa menn hafa verið töluvert hærri. Hún segir að sá sem tók hana hálstaki hafi ítrekað sagt að hún væri kærastan hans, henni þætti þetta fyndið og þau gerðu þetta saman því þeim þætti það gaman. „Ég hef aldrei séð þennan mann áður,“ segir hún og að hún viti ekki hversu langur tími þetta var. Unnur Lilja segist ekki vita hver tilgangurinn var. Þessi hópur af mönnum hafi verið að egna hvorn annan upp og hafi þótt þetta fyndið. Þeir hafi reynt að sýna henni myndbandið og þótt það fyndið. „Ég hugsaði allan tímann að ég myndi ekki lifa þetta af. Það var hnífur, það voru fimm eða sex menn og ég hugsa með mér að ég sé hvort eð er að fara að deyja,“ segir hún og að hún hafi náð að lemja frá sér þegar maðurinn hafi ætlað að byrja að kyssa hana aftur. „Eftir að hafa gert alls konar hluti, þetta var kynferðisofbeldi, þetta var líkamsárás, þá náði ég að lemja hann í hálsinn,“ segir hún og að manninum hafi brugðið verulega við það. Brutust út slagsmál sem björguðu henni „Þá sleppti hann aðeins takinu,“ segir hún og að þá hafi hún loks náð að segja að hún þekkti hann ekki og fimmti maðurinn, sem var að taka upp fyrir þann sem hélt henni, hafi þá brugðist við og krafið hann útskýringa og gert sér grein fyrir alvarleika málsins. Hún segir við það hafa brotist út slagsmál á milli þessara tveggja vinahópa og hún hafi við það náð að flýja út en hann elt hana en hún að endingu komist frá honum. Unnur Lilja segir að eftir heimkomu hafi hún leitað til Stígamóta og eftir eitt viðtal talið sig orðna nokkuð góða. Það hafi samt ýmislegt gerst eftir það sem hafi bent til þess að hún væri það ekki. Hún hafi upplifað vanlíðan og henni hafi liðið eins og hún gæti ekki verið ein í til dæmis verslunarmiðstöð. „Þetta kom aftan að mér og ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en ég fattaði að ég gat ekki farið ein á almenningssklósett.“ Unnur Lilja varð svo ólétt og segir að í mæðravernd hafi hún fengið leiðbeiningar um að vinna betur úr sínu áfalli og hún hafi síðan gert það. Hún segist stíga fram til að vara fólk við því að þetta geti gerst og vill einnig að fólk viti að það megi segja frá þó svo að það sé langt liðið.
Portúgal Garðabær Framhaldsskólar Kynferðisofbeldi Bítið Íslendingar erlendis Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Fleiri fréttir Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Sjá meira