Innlent

Stefna á að hefja leit í nóvember

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Fjölskylda Lúðvíks er afar umhugað um að líkamsleifar hans verði sóttar ofan í sprunguna.
Fjölskylda Lúðvíks er afar umhugað um að líkamsleifar hans verði sóttar ofan í sprunguna. vísir

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að í næsta mánuði verði mögulega hægt að hefja leit að jarðneskum leifum manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík árið 2024. Nú sé unnið að mótvægisaðgerðum.

Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir í samtali við fréttastofu að ákvörðun verið tekin um fyrstu fasa leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll ofan í sprungu í Hópshverfi í Grindavík árið 2024.

Leitaraðgerð er ekki hafin en Margrét Kristín segir að unnið sé að því að uppfæra mótvægisaðgerðir og tryggja að fyllsta öryggis verði gætt við leitina.

„Og svo verður tekin ákvörðun um hvort það fari tveir eða fleiri sigmenn ofan í sprunguna með rústabjörgunarvél og geri tilraun sem er í samræmi við minnisblaðið sem búið var til á sínum tíma.“

Hún segist búast við því að í nóvember verði hægt að hefja leit ef aðstæður leyfa og að allt ferlið verði búið í lok nóvembermánaðar.


Tengdar fréttir

„Við munum berjast fyrir því til síðasta dags að fá pabba aftur“

„Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að upplifa það sem við upplifðum,” segir Ásta Kristín Lúðvíksdóttir, dóttir Lúðvíks Péturssonar sem féll ofan í sprungu og lést þegar unnið var að því að bjarga húsi í Hópshverfi í Grindavík í janúar árið 2024. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf, sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi. Í dag, tveimur árum síðar, situr fjölskylda Lúðvíks uppi með ótal spurningar en lítið er um svör.

Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt

„Við fögnum þessu. Við teljum það ákaflega mikilvægt að grafið verði eftir Lúðvík. Með því fær fjölskyldan mögulega einhverja lúkningu með því að geta jarðað Lúlla. Það er líka alveg öruggt að það vill enginn Grindvíkingur að Lúlli liggi í sprungu í Grindavík,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll í sprungu í Grindavík 10. janúar 2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×