Innlent

Dómurinn feli í sér til­mæli til þingsins

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Sveinbjörn Claessen og átján aðrir lögmenn sendu erindi á dómsmálaráðherra í morgun.
Sveinbjörn Claessen og átján aðrir lögmenn sendu erindi á dómsmálaráðherra í morgun. vísir

Nítján lögmenn sem starfa á sviði skaðabótaréttar segja að nýlegur dómur Hæstaréttar feli í sér tilmæli til Alþingis um að uppfæra þurfi skaðabótalög og færa þau til nútímans. Boltinn sé hjá dómsmálaráðherra.

Í síðustu viku féll sögulegur dómur í Hæstarétti þar sem deilt var um það hvort miða ætti bætur vegna varanlegrar örorku í kjölfar umferðarslyss við lágmarkslaun konu á þrítugsaldri eða líkleg framtíðarlaun hennar sem tanntæknir.

Hæstiréttur fjallaði sérstaklega um þróun launaviðmiðs í skaðabótalögum og kom fram að lágmarksviðmið laganna hefði fjarlægst verulega tekjur launafólks frá því að reglan var lögfest árið 1999.

„Í þessum dómi er vísað sérstaklega til þess að Alþingi hafi ekki brugðist við breytingum í samfélaginu sem kalla á breytingar á skaðabótalögum,“ sagði Sveinbjörn Claessen, einn þeirra nítján lögmanna sem undirrita erindið sem sent var ráðherra í morgun.

Hæstiréttur hnýti í Alþingi

Hann segir að ýmsar breytingar þurfi að gera á skaðabótalögum en lögin séu úrelt og tryggi ekki lengur ýmsum hópum tjónþola fullar bætur fyrir líkamstjón svo sem námsmönnum, börnum og heimavinnandi fólki.

„Það sem er kannski mest aðkallandi eru breytingar á vísitölutengingu lágmarkslaunaviðmiðs skaðabótalaganna og hámarkslaunaviðmiðs þótt aðrar komi einnig til en Hæstiréttur er að hnýta í Alþingi fyrir að hafa ekki breytt þessu.“

Afleiðingin af athafnaleysi þingsins kunni að leiða til þess að stjórnarskrárvarinn réttur tjónþola til skaðabóta sé ekki tryggður.

Ákallið er ekki nýtt en árið 2018 var frumvarp lagt fram á Alþingi sem fól einmitt í sér breytingar á því ákvæði laganna sem var til umfjöllunar í dómi Hæstaréttar en frumvarpið dagaði uppi. Sveinbjörn segir frumvarpið hafa aftur verið til umræðu árið 2022 og síðan þá legið í skúffu í dómsmálaráðuneytinu.

Dómurinn sem slíkur er áskorun til dómsmálaráðherra um að gera einhverjar úrbætur, ekki satt? Er ekki ákveðið athafnaleysi í því ef ráðherrann bregst ekki við þessum dómi? 

„Ég held að þetta sé bara alveg hárrétt hjá þér og við lítum reyndar svo á að Hæstiréttur sé að benda stjórnvöldum á að þau þurfi að bregðast við og hefðu átt að vera búin með því fyrir löngu síðan.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×