Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í gær karlmann í eins árs fangesli fyrir brot í nánu sambandi, en hann beitti sambýliskonu sína ofbeldi frá því í nóvember í fyrra þangað til í mars á þessu ári. Innlent 7.7.2026 13:49
Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Wenwei Zhang í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun sem hann framdi á nýársdag árið 2024. Innlent 7.7.2026 11:46
Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Móðir fjögurra ára gamals drengs sem fannst látinn í bænum Wyong í suðvesturhluta Ástralíu á laugardag, þann 4. júlí, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald og ákærð fyrir morðið á syni sínum. Lögregla rannsakar nú hvort mannát hafi átt sér stað í tengslum við atvikið en barnaverndaryfirvöld í fylkinu hafa einnig hafið sjálfstæða rannsókn vegna tilkynninga sem þeim bárust fyrir andlátið. Erlent 7.7.2026 10:41
Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Verjandi Ming Ting Mancel, sem ákærð er fyrir manndráp í Edition-málinu, krefst þess að hún verði sýknuð af öllum kröfum ákæruvaldsins, sem fer fram á sextán ára dóm yfir henni. Til vara fer verjandi fram á að ef hún verði sakfelld hljóti hún vægustu refsingu fyrir annað brot en hún er ákærð fyrir. Innlent 30. júní 2026 11:50
Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Héraðssaksóknari fer fram á sextán ára fangelsisdóm yfir Ming Ting Mancel, sem ákærð er í Edition-málinu fyrir að svipta dóttur sína lífi í samráði við eiginmann sinn. Þá er farið fram á að hún greiði allan sakarkostnað. Innlent 30. júní 2026 10:46
Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Ríkissaksóknari telur ekki tilefni til þess að yfirfara frekar lyfjaakstursmál sem þegar hefur verið lokið. Hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur síðastliðinna sex ára. Innlent 29. júní 2026 23:24
„Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Ming Ting, sem ákærð er fyrir morð í Edition-málinu, segir að Catherine, dóttir sín, hafi lýst óánægju þegar henni varð ljóst að foreldrar hennar skyldu stinga hana með hníf enda hafi viljað fara á sem sársaukaminnstan máta. Samt hafi hún látið sig hafa það, að sögn Ming Ting. Innlent 29. júní 2026 18:59
Fósturfaðirinn áfram í gæslu Fertugur karlmaður hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn barni á grunnskólaaldri sem hann hafði í fóstri á heimili sínu. Rannsókn málsins er langt komin. Innlent 29. júní 2026 16:24
Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Hæstiréttur hafði ekki áhuga á að heyra mál manns sem var dæmdur fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýliskonu sína og kalla hana „svertingjatussu“. Maðurinn taldi málið varða stjórnarskrárvarið tjáningarfrelsi sitt. Innlent 29. júní 2026 13:51
„Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Catherine Mancel, dóttir Ming Ting Mancel sakbornings í Edition-málinu, er sögð hafa skilið aðgangskort sitt og vinnutölvu eftir á vinnustað sínum í Írlandi áður en hún hélt með foreldrum sínum til Íslands, þar sem hún lést. Þetta þótti óvenjulegt að sögn fyrrverandi kollega hennar, einkum vegna þess að hún ætlaði að nota tölvuna í fjarvinnu á Íslandi. Innlent 29. júní 2026 12:06
Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Hæstaréttarlögmaður telur ríkissaksóknara þurfa að endurskoða hundruð ef ekki þúsund mál í kjölfar þess að skjólstæðingur hans var sýknaður af lyfjaakstri fyrir Landsrétti. Skortur á reglugerð og vanhæfismörkum til sex ára hafi valdið óréttlætanlegum réttarspjöllum. Innlent 29. júní 2026 11:53
Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstarréttarlögmaður skorar á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur eftir að ný umferðarlög tóku gildi árið 2020. Hann segir ótækt að ráðherra hafi ekki séð sér fært um að kveða á um vanhæfismörk með nánari hætti en skjólstæðingur hans var sýknaður í Landsrétti eftir að hafa fjórum sinnum ekið bíl undir áhrifum uppáskrifaðs óxýkódon. Innlent 29. júní 2026 07:05
Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Með dómi Landsréttar í máli nr. 785/2025 frá 25. júní 2026 var ákærði sýknaður af því að hafa fjórum sinnum á tímabilinu 1. febrúar 2024 til 5. mars 2025 ekið bifreið undir áhrifum óxýkódon sem hann var með uppáskrifað af lækni. Skoðun 29. júní 2026 07:02
Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Landsréttur hefur mildað dóm yfir manni sem meðal annars var dæmdur í héraði fyrir að hafa í fjögur skipti ekið undir áhrifum slævandi lyfja á Akureyri. Maðurinn var upphaflega dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra, en Landsréttur sýknaði manninn af því að hafa ekið undir áhrifum og mildaði dóminn í þrjá mánuði. Innlent 28. júní 2026 07:15
Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Baðlón á suðvesturhorninu hefur verið sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns sem lenti í vinnuslysi á hálu gólfi og hlaut áverka. Niðurstaðan var því sú að um óhappatilvik hafi verið að ræða sem vinnuveitandanum verður ekki kennt um með saknæmri háttsemi. Innlent 26. júní 2026 16:02
Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Landsréttur staðfesti sýknu ríkisins af kröfu manns sem var ósáttur við að þurfa að sæta sóttkví í kórónuveirufaraldrinum. Sá krafðist rúmlega tveggja milljóna króna miskabóta fyrir frelsissviptingu. Innlent 26. júní 2026 08:06
Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Elon Musk, auðugasta manni heims, hefur verið gert að vera vitni undir eið í tveimur fyrirhuguðum hópmálsóknum þar sem hann er sakaður um að hafa svikið kjósendur í óvissuríkjum (e. swing states) fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2024 með því að lofa milljón dollara, ríflega hundrað og tuttugu milljónum íslenskra króna, til þeirra sem ynnu daglega gjafaleiki sína. Erlent 25. júní 2026 23:10
Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Saksóknarar í New York hafa fellt niður ákæru á hendur kvikmyndaframleiðandanum og kynferðisafbrotamanninum Harvey Weinstein. Málið hafði þegar verið tekið fyrir þrisvar sinnum, einu sinni leiddi það til sakfellingar sem var hnekkt og tvisvar sinnum komst kviðdómur ekki að niðurstöðu. Aðrar sakfellingar Weinsteins, þar á meðal fyrir annað kynferðisbrot í New York og önnur í Kaliforníu, standa enn. Erlent 25. júní 2026 20:25
Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Erica Mancel, systir Emeric Mancel, manns sem fannst látinn á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra, bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Erica er mágkona Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samráði við Emeric, eiginmann sinn, á hótelinu. Erica segir bróður sinn hafa verið afar stjórnsaman og að eiginkona hans og dóttir hafi verið undirgefnar honum. Hún segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta og hún hefði átt í erfiðleikum með að búa ein. Innlent 24. júní 2026 15:06
Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Hæstiréttur sýknaði ríkið af kröfu tæknifyrirtækisins Vélfags vegna frystingar á fjármunum félagsins í dag. Máli meirihlutaeiganda Vélfags gegn ríkinu vegna stjórnarsetu hans var vísað frá en lögmaður Vélfags segir að hann muni nú taka sæti í stjórn félagsins. Viðskipti innlent 24. júní 2026 15:00
Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í fjögurra mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi í þegar hann ók á rúmlega 130 kílómetra hraða á gangandi vegfaranda á Sæbraut í Reykjavík aðfararnótt sunnudagsins 29. september 2024. Ung kona lést í slysinu. Innlent 24. júní 2026 14:56
Tæplega tveggja ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann í 22 mánaða fangelsi fyrir að flytja um 1,7 kíló af kókaíni með flugi til landsins í apríl síðastliðnum. Innlent 24. júní 2026 14:38
„Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Margrét McArthur Friðriksdóttir blaðamaður var kærð af Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og féll dómur í héraði 4. júní síðastliðinn ritaður af Jónasi Jóhannssyni. Þar kennir ýmissa grasa. Innlent 24. júní 2026 06:47
Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Karlmaður hefur verið dæmdur til sextán mánaða fangelsisdóms, skilorðsbundið, fyrir að brjóta kynferðislega á átta stúlkum á aldrinum tólf til fjórtán ára á um fjögurra mánaða tímabili árið 2022. Maðurinn er einnig dæmfur fyrir að hafa í fórum sínum mikið magn barnaníðsefnis. Innlent 23. júní 2026 06:45