Innlent

Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap

Jakob Bjarnar skrifar
Ingibjörg spurði Ingu um fyrirhugaðar breytingar á einkunnarkerfinu en uppskar, að mati stjórnarandstöðunnar, helberan skæting og dónaskap af hálfu ráðherrans.
Ingibjörg spurði Ingu um fyrirhugaðar breytingar á einkunnarkerfinu en uppskar, að mati stjórnarandstöðunnar, helberan skæting og dónaskap af hálfu ráðherrans. vísir/einar/viktor freyr

Þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu ráðherra, og einkum þá Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, um skæting og dónaskap á þingfundi í dag. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, sagðist ekkert skilja um hvað „blúndurnar í stjórnarandstöðunni“ væru að tala um.

Sigurjón virtist þar vera að vísa til þess að stjórnarandstaðan hefði gert sig bera af ofurviðkvæmni í hinu pólitíska argaþrasi þar sem menn hafa einatt ekki hikað við að sýna hornin.

Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, fór upp strax að loknum dagskrárliðnum „Óundirbúinn fyrirspurnartími“ og vildi ræða fundarstjórn forseta. Hann sagði óundirbúinn fyrirspurnartíma þingmönnum mikilvægan því þar fengju þeir tækifæri til að spyrja ráðherra og væntu svara.

Stjórnarandstaðan verði ítrekað fyrir útúrsnúningum

Stefán Vagn sagðist gera sér fyllilega grein fyrir því að í einhverjum tilvikum gæti reynst erfitt að svara en hann hefði hins vegar enga þolinmæði fyrir dónaskap og hroka í garð háttvirts þingmanns sem væri einfaldlega að reyna að afla sér upplýsinga. Stefán Vagn hvatti forseta til að taka hæstvirtan ráðherra til sín og fara yfir kurteisisreglur „gagnvart okkur sem erum einfaldlega að reyna að fá svör“.

Klippa: Inga og Ingibjörg takast á í þingsal

Einsýnt var að Stefán var einkum að vísa til þess þegar Ingibjörg Isaksen, félagi Stefáns í Framsóknarflokknum, vildi spyrja Ingu út í breytingar sem til standi að gera á einkunnakerfi í 10. bekk grunnskóla, sem ganga út á að færa einkunnir yfir í tölustafi úr bókstöfum. Ingibjörg vildi meina að það væri með öllu óundirbúið og hún skyldi hreinlega ekki út á hvað slík breyting gengi?

Bryndís Haraldsdóttir fór í pontu og tók undir með Stefáni Vagni og sagði að mikilvægur hluti eftirlits stjórnarandstöðu með ríkisstjórninni væri þessi dagskrárliður og ráðherrum bæri að svara refjalaust.

Bryndís Haraldsdóttir taldi þetta reglu frekar en undantekningu, að ráðherrar svöruðu engu nema með skætingi og dónaskap.visir/anton brink

„Við verðum hins vegar ítrekað fyrir því að ráðherra snúi út úr eða sé jafnvel með skæting og helberan dónaskap undir þessum dagskrárlið, sem beinist gegn þeim þingmanni sem er að rækja eftirlitsskyldu sína og er algjörlega óásættanlegt.“

Blúndurnar í stjórnarandstöðu

Sigurjón Þórðarson vildi vita í hverju dónaskapurinn fælist. Væri þetta ekki einfaldlega svo að þeir væru ósáttir við svörin sem þeir vildu fá? Sigurjón gerði eiginlega illt verra með því að kalla þingmenn stjórnarandstöðunnar „blúndur“, þá með vísan til þess að þeir væru ofurviðkvæmir. Í það minnsta að drepa málinu á dreif.

Jón Pétur sagði það ljóst öllum sem sjá vildu að það væri verið að bókstafakerfið stæði nú til að dulbúa með tölum.vísir/anton brink

Jón Pétur Zimsen, Sjálfstæðisflokki, lét það þó ekki henda sig og sagði Ingibjörgu Isaksen hafa spurt heiðarlegrar spurningar. Ljóst hafi verið að Inga hafi alls ekki verið með málin á hreinu. 

„Og í staðinn fyrir að viðurkenna það var svarað með skætingi og vegið að starfsheiðri og menntun þingmanns.“ Jón Pétur sagði þetta allt til á myndbandi en ljóst væri að það væri einfaldlega verið að breyta breytinganna vegna, bókstafakerfið væri dulbúið í tölum og það sjái allir sem sjá vilja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×