Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Atli Ísleifsson skrifar 19. október 2026 13:59 Fresta þarf tímabókunum um nokkra daga. Vísir/Vilhelm Vegna tafa á afhendingu bóluefnis við inflúensu þarf að fresta bólusetningum um nokkra daga. Stefnt er að því að hefja bólusetningar fyrir fólk í áhættuhópum í næstu viku.
Þetta kemur fram í tilkynninu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar segir að áformað hafi verið að hefja bólusetningar fólks í forgangshópum 20. október og hafi heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þegar verið byrjaðar að bóka tíma. „Þar sem afhending bóluefnis hefur dregist þarf að fresta tímabókunum um nokkra daga. Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær heilsugæslustöðvar fá bóluefnið en vonast er til þess að það takist að hefja bólusetningar fólks í áhættuhópum fyrir lok október. Þeir sem teljast í áhættuhópum eru: Fólk 60 ára og eldra. Börn milli 6 mánaða og 5 ára aldurs. Börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Barnshafandi einstaklingar. Heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í áhættuhópum. Fólk sem telst í áhættu á samsmiti inflúensu og fuglainflúensu vegna starfs síns. Í kjölfar bólusetninga fólks í áhættuhópum verður opnað fyrir bólusetningar fyrir aðra. Bóka þarf tíma í bólusetningar í gegnum Heilsuveru en fólk er hvatt til að hinkra þar sem ekki er vitað hvaða dag verður hægt að byrja að bólusetja. Börn 2 til 4 ára fá nefúða Vikuna 2. til 6. nóvember verður börnum 2 til 4 ára boðið upp á bólusetningu við inflúensu með nefúða. Ekki þarf að bóka tíma heldur verður opið hús á heilsugæslustöðvum milli 15 og 17. Nefúðinn er kominn til landsins og því engar tafir á þessum bólusetningum. Eldri systkini sem eru í áhættuhópum eru velkomin með og geta fengið nefúða. Tilvalið er fyrir foreldra að koma við á heilsugæslunni með börnin á leiðinni heim eftir leikskólann, og bangsinn er velkominn líka til að fá nefúða,“ segir í tilkynningunni.
Bólusetningar Heilbrigðismál Heilsugæsla Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Sjá meira