Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Árni Sæberg skrifar 8. október 2026 15:17 Margrét Halla Hansdóttir Löf er mikil hestaáhugakona. Foreldrar hennar studdu hana mikið í því áhugamáli. Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms um sextán ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf, sem hún hlaut fyrir að ráða föður sínum bana á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ í apríl í fyrra og að ráðast á móður sína. Kröfu hálfbróður hennar um að hún yrði gerð arflaus var vísað frá dómi.
Landsréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 15 á bak við luktar dyr. Dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Margrét Halla var dæmd í 16 ára fangelsi í héraði í desember í fyrra fyrir að hafa banað föður sínum og fyrir stórfellda og sérstaklega hættulega líkamsárás gegn móður sinni. Ekki þótti sannað að Margrét hefði haft ásetning að ráða móður sína af dögum og var hún því ekki sakfelld fyrir tilraun til manndráps þegar hún gerði atlögu að foreldrum sínum á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ þann 11. apríl 2025. Dómur Héraðsdóms Reykjaness er reifaður ítarlega í fréttinni hér að neðan: Talsverða athygli vakti á sínum tíma þegar héraðsdómur vísaði kröfu hálfbróður Margrétar Höllu, um að hún yrði gerð arflaus eftir föður þeirra, frá dómi á þeim grundvelli að slík krafa þyrfti að koma frá ákæruvaldinu. Þinghald var lokað í málinu, bæði fyrir héraðsdómi og í Landsrétti, en heimildir Vísis herma að Ríkissaksóknari hafi krafist þess í Landsrétti að refsing Margrétar yrði ekki eingöngu staðfest heldur þyngd úr sextán ára fangelsi í sautján ár. Meðal þess sem saksóknari taldi til refsiþyngingar var ofbeldi Margrétar gegn öldruðum foreldrum sínum yfir lengri tíma.
Manndráp í Súlunesi Dómsmál Fjölskyldumál Garðabær Tengdar fréttir „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Bróðir Margrétar Löf, sem var dæmd í sextán ára fangelsi fyrir að hafa orðið föður þeirra að bana, skilur að upp hafi vaknað spurningar um meint aðgerðaleysi hans vegna heimilisofbeldis sem faðir hans varð fyrir en samband hans við fjölskylduna hafi ekki verið hefðbundið fjölskyldumynstur. Hann gagnrýnir aðgerða- og úrræðaleysi heilbrigðisstéttarinnar. 3. mars 2026 11:43 Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Saksóknari í Súlunesmálinu svokallaða krefst þess að refsing Margrétar Höllu Hansdóttur Löf verði þyngd í sautján ára fangelsi. Málsmeðferð fyrir Landsrétti lauk í liðinni viku og er dóms beðið í málinu. 18. september 2026 06:48 Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Hálfbróðir Margrétar Löf krafðist þess fyrir dómi að ákveðið yrði að með því að drepa föður sinn hafi hún fyrirgert rétti sínum til þess að erfa hann. Kröfu hans var vísað frá dómi og vísað til þess að svipting erfðaréttar teljist samkvæmt lögum til refsikenndra viðurlaga við afbroti og að ákvörðun um slíka kröfu verði að koma frá ákæruvaldinu. 17. desember 2025 06:30 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira
„Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Bróðir Margrétar Löf, sem var dæmd í sextán ára fangelsi fyrir að hafa orðið föður þeirra að bana, skilur að upp hafi vaknað spurningar um meint aðgerðaleysi hans vegna heimilisofbeldis sem faðir hans varð fyrir en samband hans við fjölskylduna hafi ekki verið hefðbundið fjölskyldumynstur. Hann gagnrýnir aðgerða- og úrræðaleysi heilbrigðisstéttarinnar. 3. mars 2026 11:43
Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Saksóknari í Súlunesmálinu svokallaða krefst þess að refsing Margrétar Höllu Hansdóttur Löf verði þyngd í sautján ára fangelsi. Málsmeðferð fyrir Landsrétti lauk í liðinni viku og er dóms beðið í málinu. 18. september 2026 06:48
Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Hálfbróðir Margrétar Löf krafðist þess fyrir dómi að ákveðið yrði að með því að drepa föður sinn hafi hún fyrirgert rétti sínum til þess að erfa hann. Kröfu hans var vísað frá dómi og vísað til þess að svipting erfðaréttar teljist samkvæmt lögum til refsikenndra viðurlaga við afbroti og að ákvörðun um slíka kröfu verði að koma frá ákæruvaldinu. 17. desember 2025 06:30