Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Freyja Þórisdóttir skrifar 21. september 2026 07:02 Ferðamaður sem átti bókaða norðurljósaferð með ónafngreindu ferðaþjónustufyrirtæki sat eftir með sárt ennið þar sem ferðin var farin þrátt fyrir óhagstæð veðurskilyrði. Vísir/Vilhelm Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu aðila sem vildi fá endurgreitt í kjölfar norðurljósaferðar sem farin var í rigningu og roki. Hann heldur því fram að það hafi ekki verið raunhæfur möguleiki á að sjá norðurljós í ferðinni.
Kemur þetta fram í úrskurði kærunefndarinnar sem var kveðinn upp þann 8. september síðastliðinn en það var í desember 2025 sem nefndin fékk málið á sitt borð. Þá var krafa sóknaraðila að varnaraðili myndi endurgreiða honum þann hluta kaupverðsins sem hann greiddi fyrir norðurljósaferð sem hann fór í þann 24. september 2025. Borgaði þrjátíu þúsund krónur Varnaraðili, ónafngreint fyrirtæki, sendi ekki gögn né andsvör til nefndarinnar en staðfesti móttöku kvörtunarinnar þann 3. febrúar 2026. Samkvæmt gögnum máls festi sóknaraðili kaup á ferðatengdri þjónustu hjá varnaraðila sem fólst annars vegar í tveggja klukkustunda norðurljósaferð og hins vegar í annarri fjögurra klukkustunda ferð. Í kvörtuninni kemur fram að norðurljósaferðin hafi ekki verið veitt „með þeim hætti sem auglýst var eða eðlilegt væri að gera ráð fyrir“. Sóknaraðili bendir á að hann hafi keypt ferðirnar saman, í samsettum ferðapakka, og greitt í heildina 263,67 bandaríkjadali fyrir eða ríflega 30 þúsund íslenskar krónur. Sóknaraðilinn gerði kröfu um að fá upphæðina sem jafngildir verði Norðurljósaferðarinnar endurgreidda en hafði á orði að skortur á sundurliðun verðsins hefði torveldað honum að leggja mat á fjárhæð kröfunnar. Hann sagði ferðina hafa verið farna þrátt fyrir að það væri fyrirsjáanlegt að veðrið yrði ekki með sem bestum hætti. Það hafi svo verið mikil rigning, hvassviðri og lítið skyggni þegar ferðin hafi verið farin. Í kvörtuninni vísaði sóknaraðili til þess að önnur fyrirtæki sem bjóða sambærilega þjónustu fylgist með veðurspám og bjóði farþegum að færa bókun sína ef aðstæður eru taldar óhagstæðar. Ekki hægt að tryggja gott skyggni Honum hafi þó verið boðið að endurbóka ferðina innan tveggja ára og hafi reynt að nýta sér þann möguleika og fara í aðra ferð þann 6. október 2025 en að endingu ekki tekist það. Í niðurstöðu kærunefndar segir meðal annars að hún bendi á að eðli norðurljósaferða sé að sýn á norðurljós verði ekki tryggð og að veður og aðrar náttúrulegar aðstæður geti haft áhrif á árangur slíkra ferða. Af gögnum málsins verði ekki ráðið að varnaraðili hafi ábyrgst að norðurljós sæjust eða hafi skuldbundið sig til að aflýsa ferð ef tiltekin veðurskilyrði væru fyrir hendi. Hins vegar hafi varnaraðili tekið fram í tölvupósti til sóknaraðila að stuðst sé við svokallaðan KP-stuðul við mat á möguleika á að sjá norðurljós. Samkvæmt upplýsingum í tölvupóstinum hafi starfsmenn varnaraðila metið það sem svo að möguleiki væri að sjá norðurljós á þessum tíma þrátt fyrir veðurspá. Þrátt fyrir að veðurskilyrði hafi verið óhagstæð verði ekki talið að varnaraðili hafi vanefnt samning með því að halda ferðina. „Engin gögn hafa verið lögð fram sem sýna fram á að ferðin hafi verið óframkvæmanleg eða óforsvaranleg vegna veðurs eða að ómöguleiki hafi verið á að sjá norðurljós,“ segir í úrskurðinum og sé kröfu sóknaraðila í málinu því hafnað.
Norðurljós Ferðaþjónusta Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Sjá meira