Neytendur

Inn­kalla Euro Market brauð vegna málmhlutar

Lindabakarí ehf. innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, (HEF) Euro Market brauð en aðskotahlutur úr málmi fannst í einu brauði af umræddri framleiðslu.

Neytendur

Kalla inn pylsur vegna prent­villu

Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, kalla inn pylsur merktar Krónunni í tíu stykkja umbúðum. Ástæða innköllunar er ótilgreindur ofnæmisvaldur vegna prentvillu. 

Neytendur

Breytingar á fyrsta far­rými

Icelandair kynnir í dag fyrsta skrefið í breytingum á Saga Premium. Í tilkynningu segir að það sé betra farrými fremst í flugvélum félagsins. Nú er þá hægt að velja sér um fimm fargjaldaflokka ætli maður að fljúga með Icelandair.

Neytendur

Inn­kalla te sem inni­hélt ál

Mikið magn af áli mældist í tei og hefur það verið innkallað af Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Varan sem um ræðir heitir SHAN WAI SHAN matcha green tea, og var flutt til landsins af Kina Panda ehf. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja innkallað vöruna.

Neytendur

Sektir Neyt­enda­stofu á bílastæðafyrir­tækin „dropi í hafið“

Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir bílastæðafyrirtæki sum „síbrotafyrirtæki“.  Þó svo að hann sé ánægður með nýlega sekt Neytendastofu telur hann þurfa að stíga fastar niður. Það eigi að vera skýrt hver kostnaður er við að leggja á bílastæði áður en fólk leggur. Rætt var við Breka í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Neytendur

Styrkja fjar­skipta­kerfið fyrir almyrkvann

Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. 

Neytendur

Arion banki hækkar gjöld

Arion banki hefur tilkynnt um breytta verðskrá fyrir einstaklingsþjónustu bankans, sem tekur gildi þann 23. september. Flest gjöld hækka um þrjú til fimm prósent.

Neytendur

Kalla inn fæðu­bótar­efni

Heilsubúðin og Heildsalan Mamma veit best ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes, ákveðið að innkalla fæðubótarefnið Liposomal NMN frá Codeage.

Neytendur

Lite-æðið hafi Ís­lendinga að fíflum

Á undanförnum árum virðist nýtt æði hafa rutt sér til rúms á íslenskum áfengismarkaði: svokallaður „lite“-bjór, eða léttur bjór. Næringarfræðingur segir léttan bjór ekki vera mikið hollari heldur en venjulegan bjór þó hann innihaldi færri hitaeiningar. Hollasta leiðin til að drekka bjór sé einfaldlega að drekka minna af honum.

Neytendur

Þung­málmar flæða úr steypujárnspönnu

Matvælastofnun varar neytendur við notkun steypujárnspönnu frá kínverska Napoleon, sem seld er í Byko, vegna flæðis þungmálma. „Vinsamlegast hættu að nota hana strax,“ segir í tilkynningu frá Byko.

Neytendur

Kreditkortavandi hjá Lands­bankanum leystur

Kreditkortagreiðslur hjá Landsbankanum sem voru skuldfærðar 2. júlí hafa ekki enn skilað sér vegna bilunar. Það hefur áhrif á ráðstöfun kortanna. Unnið er að því að finna lausn á vandamálinu.

Neytendur

Ó­dýrast að tjalda á Vestur­landi

Verð fyrir gistinótt eins fullorðins á tjaldsvæðum landsins hefur hækkað að meðaltali um tæp sjö prósent á milli ára en verð á rafmagni um rúm ellefu prósent. Þegar litið er á meðalverð landshluta er dýrast að tjalda á höfuðborgarsvæðinu en ódýrast á Vesturlandi. 

Neytendur

Thule lækkar í prósentu

Bjórinn Thule mun lækka í prósentu. Hann hættir að vera 5 prósenta bjór og verður frekar 4,4 prósenta „lite“ bjór. Hann mun samt áfram heita Thule. Coca Cola á Íslandi segist gera þetta til að mæta breyttum áherslum neytenda sem leiti í auknum mæli að léttari bjór.

Neytendur

Einungis sjö bílar kallaðir inn

Eigendur Land Rover-bíla sem BL hefur innkallað vegna skipta á háspennurafhlöðu þurfa ekki að hætta að keyra bílana þar til þeir komast í viðgerð. Öruggt er að keyra þá en einungis sjö ökutæki er um að ræða. 

Neytendur

Kaup­máttur heldur á­fram að aukast

Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 1,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026. Ráðstöfunartekjur jukust um 6,4 prósent milli ára og vísitala neysluverðs hækkaði um 5,3 prósent. 

Neytendur

Taka ekki upp gjald­skyldu við Kringluna

Ekki stendur til að taka upp gjaldskyldu á bílastæði við Kringluna líkt og ákveðið hefur verið að gera við verslunarmiðstöðina Smáralind. Markaðsstjóri Kringlunnar segir meiri aðsókn í verslunarmiðstöðina en bílastæðaskortur sé ekki sérstakt vandamál.

Neytendur