Hekla innkallar 2.610 bíla Árni Sæberg skrifar 28. september 2026 13:43 Innköllunin nær meðal annars til bíla af gerðinni Volkswagen Golf. Luca Piccini Basile/Getty Volkswagensamstæðan hefur tilkynnt um innköllun á ákveðnum gerðum Volkswagen, Skoda og Audi ökutækja í varúðarskyni vegna mögulegrar tæringar á bolta, sem festir stýrisvél við undirvagn.
Í fréttatilkynningu frá bílaumboðinu Heklu segir að á Íslandi nái innköllunin samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum til um 2.230 Škoda-bifreiða af gerðunum Karoq, Kodiaq, Octavia og Superb, 378 Volkswagen-bifreiða af gerðunum Golf, Tiguan og Touran ásamt tveimur Audi Q3-bifreiða. Alls séu þetta um 2.610 bifreiðar af árgerðum 2015 til 2024. Eigendur viðkomandi bifreiða muni fá sent bréf frá Heklu með nánari upplýsingum um næstu skref. Lagfæring felist í að skipta boltanum út fyrir bolta með aukinni tæringarvörn. Ekki liggi enn fyrir hvenær varahlutir verða tiltækir á Íslandi. Eigendur bíla sem falla undir innköllunina fái tilkynningu þegar varahlutir berast og geti þá bókað tíma hjá Heklu eða viðurkenndum þjónustuverkstæðum. Samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda hafi ekkert slys eða atvik sem rekja má til þessa máls verið tilkynnt og óhætt sé að nota ökutækin þar til komið er að lagfæringu. Hekla leggi ríka áherslu á öryggi viðskiptavina sinna og muni tryggja að framkvæmd innköllunarinnar gangi hratt og örugglega fyrir sig og sé viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Ef einhverjar spurningar vakna sé hægt að hafa samband við hekla@hekla.is „Ef óvenjulegt málmhljóð heyrist framan úr bílnum eða breyting verður á hegðun stýris skal stöðva á öruggum stað, ekki aka lengra og hafa samband við viðurkenndan þjónustuaðila.“
Innköllun Bílar Mest lesið Uppsagnir í Arion banka Viðskipti innlent Lækka verð á þúsund vörum Neytendur Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Hekla innkallar 2.610 bíla Neytendur Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Framúrskarandi fyrirtæki Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf Loka Krambúðinni á Húsavík Viðskipti innlent Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Neytendur Fleiri fréttir Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Sjá meira
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf