Neytendur

Taki stöðuna al­var­lega og hækki ekki verð um­fram verðbólgumarkmið

Freyja Þórisdóttir skrifar
Ölgerðin er meðal dótturfélaga Beru.
Ölgerðin er meðal dótturfélaga Beru. Vísir/Vilhelm

Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs, Kjarnavara og fleiri vörumerkja, hefur heitið því að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Er skrefið stigið í von um að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld grípi til eigin aðgerða gegn verðbólgunni.

Frá þessu er greint í tilkynningu sem forstjóri Beru sendi frá sér en þar kemur fram að hún sé svar við því að verkalýðsfélögin VR, LÍV og fagfélögin óskuðu eftir afstöðu fyrirtækisins til verðlagsþróunar. Þau hafi einnig kallað eftir framlagi fyrirtækisins til að ná niður verðbólgu og vöxtum.

„Bera tekur stöðuna á vinnumarkaði alvarlega og hyggst leggja sitt af mörkum með því að skuldbinda sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands,“ segir í tilkynningunni en verðbólgumarkmiðið er 2,25 prósent.

Útlit sé fyrir að styrking krónunnar að undanförnu muni hafa áhrif til lækkunar á innflutningsvörum Danól og Ölgerðarinnar á næstu dögum. Það muni einnig hafa jákvæð áhrif á verð matarkörfu landsmanna.

Bera og dótturfélögin Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur hafi um árabil leitað allra leiða til aukinnar hagræðingar. Tilgangurinn hafi ekki bara verið að bæta arðsemi heldur einnig að geta boðið lægra verð.

„Nefna má sem dæmi að hækkanir Ölgerðarinnar, stærsta dótturfyrirtækis Beru, hafa verið undir þróun neysluverðsvísitölu síðustu ár,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir enn fremur að stjórn og stjórnendur Beru og viðkomandi dótturfélaga vilji gefa þessa sérstöku skuldbindingu nú „í von um að aukinn fyrirsjáanleiki um verðþróun á næstunni auðveldi vinnumarkaðsaðilum jafnt sem stjórnvöldum að taka sínar ákvarðanir.“

Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Formenn verkalýðsfélaganna VR, LÍV og Fagfélögin hafa, með bréfi, óskað eftir afstöðu Beru til verðlagsþróunar og kallað eftir framlagi fyrirtækisins til að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Bréfinu hefur verið svarað á eftirfarandi hátt:

Bera tekur stöðuna á vinnumarkaði alvarlega og hyggst leggja sitt af mörkum með því að skuldbinda sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.

Fyrirtækið skuldbindur sig til að gera þetta þrátt fyrir að um áramótin komi til framkvæmda 3,5% launahækkun samkvæmt kjarasamningum.

Vill fyrirtækið stíga þetta skref í von um að aðilar vinnumarkaðarins, en ekki síður stjórnvöld, grípi til eigin aðgerða gegn verðbólgunni sem tryggi aukinn vinnumarkaðs- og verðstöðugleika á Íslandi.

Þá er útlit fyrir að styrking krónunnar að undanförnu muni hafa áhrif til lækkunnar á innflutningsvörum Danól og Ölgerðarinnar á næstu dögum. Mun það einnig hafa jákvæð áhrif á verð matarkörfu landsmanna.

Bera og dótturfélögin Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur hafa um árabil leitað allra leiða til aukinnar hagræðingar. Tilgangurinn hefur ekki bara verið að bæta arðsemi heldur einnig að geta boðið lægra verð. Nefna má sem dæmi að hækkanir Ölgerðarinnar, stærsta dótturfyrirtækis Beru, hafa verið undir þróun neysluverðsvísitölu síðustu ár.

Stjórn og stjórnendur Beru og viðkomandi dótturfélaga vilja hins vegar gefa þessa sérstöku skuldbindingu nú, í von um að aukinn fyrirsjáanleiki um verðþróun á næstunni auðveldi vinnumarkaðsaðilum, jafnt sem stjórnvöldum að taka sínar ákvarðanir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×