Innlent

„Takk fyrir vin­skapinn, elsku Lárus“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jóhann Páll Jóhannsson loftslagsráðherra sér á eftir Lárusi sem hafi staðið sig vel sem aðstoðarmaður.
Jóhann Páll Jóhannsson loftslagsráðherra sér á eftir Lárusi sem hafi staðið sig vel sem aðstoðarmaður. Vísir/Anton Brink

Lárus M.K. Ólafsson hefur ákveðið að láta af störfum sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, eftir tæplega tveggja ára starf. Þeir kveðja hvor annan með söknuði.

„Þetta hefur verið geðveikt partý og verður það áfram. Ég kveð með miklu þakklæti og tilhlökkun fyrir því sem tekur við hvað sem svo það verður,“ sagði Lárus í færslu á Facebook á föstudag.

Hann útskýrir ekki ástæður breytinganna í viðtali við Viðskiptablaðið heldur segist einfaldlega hafa ákveðið að láta gott heita á þessum tímapunkti og skipta um vettvang.

Jóhann kvaddi Lárus í færslu á Facebook í gær.

„Hann er búinn að gegna ómissandi hlutverki síðustu tvö árin við að hrista upp í orkumálunum, keyra áfram kerfisbreytingar og koma hlutum í verk.

Hvílík fagmennska, loyalítet og drifkraftur alla daga. Best þó hvað hann er skemmtilegur. Takk fyrir samstarfið, samveruna og vinskapinn elsku Lárus,“ sagði Jóhann Páll.

Lárus er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands með sérhæfingu á sviði umhverfis- og auðlindamála. Hann var yfirlögfræðingur Orkustofnunar 2008-2011 og jafnframt staðgengill orkumálastjóra.

Lárus starfaði frá 2019 sem sérfræðingur á sviði orku- og umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins, en áður var hann lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka ferðaþjónustunnar. Þá starfaði hann sem lögfræðingur á skrifstofu orkumála hjá iðnaðarráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu á árunum 2005-2008.

Lárus hefur gegnt ýmsum nefndar- og stjórnarstörfum og hefur m.a. frá 2024 verið formaður norræna umhverfismerkisins Svansins á Íslandi og verið varaformaður í stjórn Úrvinnslusjóðs frá 2012. Þá hefur hann annast kennslu á sviði umhverfis- og auðlindaréttar ásamt því að vera prófdómari við Háskóla Íslands á framangreindum sviðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×