Veður

Suð­austan stormur og gul við­vörun

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Skilin ganga norður yfir land í nótt.
Skilin ganga norður yfir land í nótt. Vísir/Vilhelm

Búast má við suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og suðvestanlands með rigningu í kvöld. Gul viðvörun vegna storms tekur gildi klukkan tíu í kvöld á Suðurlandi.

Í hugleiðingum sínum segir veðurfræðingur Veðurstofunnar að vaxandi lægð á Grænlandshafi sé á norðurleið og að skilin frá henni nálgist landið. Hægt vaxandi suðaustanátt komi með því en á Norður- og Austurlandi verði hægari vindur og bjartviðri.

Skilin ganga norður yfir landið í nótt og í fyrramálið verður komin sunnan stinningsgola eða kaldi og skúrir en austan allhvass vindur og rigning norðaustan- og austantil fram undir hádegi.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag:

Sunnan og suðaustan 5-13 m/s og skúrir. Austan 8-15 og rigning á Norður- og Austurlandi, en dregur úr vindi og styttir upp á þeim slóðum um hádegi. Hiti 5 til 11 stig.

Á þriðjudag:

Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 og víða skúrir, einkum sunnan- og vestantil. Hiti 3 til 8 stig.

Á miðvikudag:

Gengur í ákveðna norðanátt, en hægari suðlæg átt á austanverðu landinu. Rigning eða slydda og hiti 2 til 7 stig, en kólnar norðanlands um kvöldið með snjókomu.

Á fimmtudag:

Norðvestlæg eða breytileg átt og él norðanlands en annars lengst af úrkomulítið. Hiti kringum frostmark að deginum, en að 6 stigum við suður- og vesturströndina.

Á föstudag:

Vestlæg átt og dálitlar skúrir eða slydduél, en bjart með köflum austantil. Hlýnar í veðri.

Á laugardag:

Útlit fyrir vaxandi suðaustanátt með rigningu, en úrkomulítið norðaustan- og austantil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×